Sveitarfélög láta lítið til Vigdísarstofnunar 5. ágúst 2010 06:30 Þrátt fyrir að fyrstu undirtektir frá sveitarfélögum við styrktarbeiðni Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur virðist dræmar segir forstöðmaðurinn að fjármögnunin gangi vel og boðar góð tíðindi á næstunni.Fréttablaðið/GVA
Áætlað er að þrjú þúsund fermetra bygging undir Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í alþjóðlegum tungumálum kosti 1.300 milljónir króna. Söfnun fyrir fjármögnun Vigdísarhússins stendur enn yfir. Meðal annars er nú leitað til sveitarfélaga en fyrstu undirtektir þeirra virðast dræmar. Styrktarbeiðninni hefur meðal annars verið hafnað í Kópavogi, Borgarbyggð, Vesturbyggð, Fjallabyggð, Akureyri og í Norðurþingi. Byggðaráð Norðurþings segir um ánægjulega hugmynd að ræða en að þar leggi sveitarstjórnin metnað sinn í að verja grunnþjónustu við íbúa sveitarfélagsins á erfiðum tímum. „Í ljósi þess að sveitarfélagið þarf að forgangsraða munu þarfir mennta- og félagsmála innan sveitarfélagins hafa forgang," segir byggðaráðið. „Við vitum hvernig efnahagsástandið er og að aðstæður eru mismundandi góðar - eða slæmar. Við vildum bara tryggja að allir vissu af þessu og gætu átt möguleikann á að vera með," segir Auður Hauksdóttir, forstöðumaður Stofnunar Vigísar Finnbogadóttur. Áætlaður kostnaður við að reisa byggingu undir stofnunina er um 1.300 milljónir króna. Auður segir að inn í þá tölu sé reiknuð byggingarlóð á reit Háskóla Íslands sem metin sé á um 100 milljónir. Fyrir stuttu hafi yfir 700 milljónir safnast. Háskólinn vilji ekki hefja framkvæmdir fyrr en fjármögnun sé lokið. Leitað sé til einstaklinga, samtaka og sveitarfélaga. „Sumir hafa haft samband og lýst yfir vonbrigðum sínum yfir því að geta ekki verið með og aðrir hafa komið með stuðning. En við skynjum alls staðar þennan góða vilja og það er okkur afar dýrmætt," segir Auður og undirstrikar að orðspor Vigdísar geri það að verkum að stofnunin njóti velvilja langt út fyrir landsteinana. Til dæmis hafi ríflega tuttugu milljóna króna styrkur borist frá Færeyjum og langstærsti styrkurinn til þessa, yfir eitt hundrað milljónir króna, hafi fengist úr A.P. Möller-sjóðnum í Danmörku. Auður segist hlakka til að geta betur skýrt frá stöðunni í fjármögnunni í lok þessa mánaðar. „Það verða fréttir og þær verða skemmtilegar." gar@frettabladid.is
Mest lesið „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi Sjá meira