Úrbætur fyrir einn milljarð 5. ágúst 2010 06:00 Mynd tengist frétt ekki beint.
Áætlað er að fyrirhugaðar úrbætur á íslenskum jarðgöngum sem gera á fyrir árið 2014 muni kosta um einn milljarð króna. Óvíst er hvort tekst að bæta úr öryggismálum í göngunum fyrir þann tíma vegna óvissu um fjárframlög frá ríkinu. Alls eru átta jarðgöng í notkun á landinu í dag, og stutt í að tvö til viðbótar verði tekin í notkun. Verulegar úrbætur þarf að gera á þremur jarðgöngum, og minniháttar úrbætur þarf að gera í þremur til viðbótar. Samanlagður kostnaður við úrbæturnar er áætlaður um einn milljarður króna. Gísli Eiríksson, yfirmaður jarðgangadeildar Vegagerðarinnar, segir að mestar úrbætur þurfi að gera í Vestfjarðagöngum og í göngum sem liggja um Ólafsfjarðarmúla. Einnig þarf að gera umtalsverðar úrbætur á Hvalfjarðargöngunum. Þá þarf að gera minniháttar úrbætur á Fáskrúðsfjarðargöngum, Strákagöngum og göngum um Almannaskarð. Samkvæmt evrópskri reglugerð frá árinu 2004 hafa ríki tíu ár til að koma göngum í það horf sem þar er kveðið á um. Með breytingunni voru reglur um öryggi í jarðgöngum hertar verulega, segir Gísli. Stefnt var á að ljúka úrbótum fyrir árið 2014, en óvíst er hvort fjárveitingar fást til þess frá ríkinu. Formlega gildir evrópska reglugerðin aðeins fyrir vegi sem skilgreindir eru sem samevrópskir, segir Gísli. Hér á landi sé það í grófum dráttum þjóðvegur eitt, ásamt tengingum við Ísafjörð, Seyðisfjörð og Keflavík. Á þeirri leið eru aðeins þrjú göng; Hvalfjarðargöng, Fáskrúðsfjarðargöng og göngin um Almannaskarð. Þrátt fyrir að reglugerðin taki ekki til annarra jarðganga á Íslandi segir Gísli að unnið sé miðað við sambærilega staðla í öðrum göngum, og því gerðar sambærilegar kröfur til öryggis. Gísli Gíslason, stjórnarformaður Spalar, rekstrarfélags Hvalfjarðarganga, segir að bæta eigi úr um 20 liðum fyrir árið 2014. Mikilvægustu úrbæturnar í öryggismálum séu þó þær að gera önnur göng við hlið núverandi ganga. Nauðsynlegar rannsóknir fyrir þá gangagerð hafi þegar verið unnar, en beðið sé eftir ákvörðun ríkisvaldsins um framhaldið.brjann@frettabladid.is
Mest lesið „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Innlent Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Innlent Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Erlent Berglind rétt marði Þórhall Innlent Fleiri fréttir „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Sjá meira