Innlent

Hundrað krakkar á biðlista á BUGL

Barnadeildin á Barna- og unglingageðdeild Landspítalans eru nú lokuð vegna viðhalds, en þetta þýðir að lítil börn eru á sömu deild og unglingar. Um eitt hundrað börn og unglingar eru nú á biðlista um að komast að inn á göngudeild BUGL.

Á Bugl er tekið á móti börnum upp að 18 ára aldri sem eiga við geðheilsuvanda að stríða. Þar er veitt sérhæfð þverfagleg þjónusta sem miðar að þörfum barna og fjölskyldna þeirra.

Nú stendur yfir viðhald á byggingu deildarinnar og því er barnadeildin lokuð. Barnadeildin er venjulega lokuð yfir hásumarið en tíminn hefur lengst vegna viðhaldsins. Hafa því þau börn sem þurft hafa á umönnun að halda verið vistuð á unglingadeildinni. Ólafur Guðmundsson, yfirlæknir á BUGL, segir að slík samvera sé fullkomlega eðlileg. Ekki hafi komið upp vandamál vegna nálægðar lítilla barna og unglinga sem glíma við geðsjúkdóma.

Að sögn Ólafs eru nú um eitt hundrað börn og unglingar sem eru á biðlista á göngudeild BUGL. Þetta eru ungmenni sem eiga við geðræn vandamál að stríða og eru að bíða eftir því að fá viðtal á deildinni.

Ólafur segir að deildin hafi getað sinnt öllum bráðatilvikum í sumar og engum hafi verið vísað frá. Það sem skilgreinir bráðatilvik eru tilvik þar sem ungmenni hefur reynt sjálfsvígstilraun, sýnir sturlunareinkenni eða er óvenjulega dapurt og í hættu af þeim sökum, svo einhver dæmi séu nefnd. Engum slíkum hefur verið vísað frá í sumar.

Aðspurður segist Ólafur ekki vita um nein dæmi þess að ungmenni á biðlista hafi hafi tekið eigið líf þau fjórtán ár sem hann hefur starfað á deildinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×