Innlent

Ásta skipuð umboðsmaður skuldara

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ásta Sigrún Helgadóttir er umboðsmaður skuldara.
Ásta Sigrún Helgadóttir er umboðsmaður skuldara.
Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur skipað Ástu Sigrúnu Helgadóttur umboðsmann skuldara. Ásta var metin mjög vel hæf til starfsins í hæfnismati sem unnið var í kjölfar nýafstaðins umsóknarferlis.

Ásta Sigrún Helgadóttir er lögfræðingur að mennt. Hún lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1993. Hún var forstöðumaður Ráðgjafastofu um fjármál heimilanna um árabil.

„Ásta Sigrún var metin mjög hæf í nýafstöðnu umsóknarferli. Ég hef alltaf borið fullt traust til Ástu Sigrúnar og það er óbreytt. Við hlökkum til að vinna með henni að uppbyggingu embættis umboðsmanns skuldara," segir Árni Páll í tilkynningu til fjölmiðla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×