FME og sérstakur bæta við sig starfsmönnum 3. ágúst 2010 18:45
Embætti sérstaks saksóknara hefur ráðið tuttugu og tvo nýja starfsmenn til að rannsaka brot tengd bankahruninu og stefnt er að því að ráða tíu til tuttugu til viðbótar. Þá hefur Fjármálaeftirlitið ráðið sex starfsmenn og hyggst ráða aðra sex til viðbótar. Fjármálaeftirlitið auglýsti eftir starfsmönnum fyrr í sumar og bárust 175 umsóknir, þar af voru tuttugu lögfræðingar og 155 með viðskipta- og hagfræðimenntun. Sex voru ráðnir og eru þeir allir með viðskipta- eða hagfræðipróf. Á næstunni verða síðan sex ráðnir til viðbótar. Þegar ráðningum nýrra starfsmanna verður lokið, áður en þetta ár er úti, er gert ráð fyrir að starfsmenn FME verði um eitt hundrað en þeir voru sextíu og fimm þegar bankakerfið hrundi í október 2008. Embætti sérstaks saksóknara auglýsti einnig eftir nýjum starfsmönnum fyrr í sumar og hvorki fleiri né færri en 470 umsóknir bárust, en flestir umsækjenda voru viðskipta- eða hagfræðingar. Tuttugu og tveir hafa nú verið ráðnir. Þar af eru níu lögfræðingar, sex með menntun á sviði viðskipta- og hagfræði og sjö lögreglumenn. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, sagði í samtali við fréttastofu í dag að embættið stefndi að því að bæta við sig tíu til tuttugu starfsmönnum til viðbótar í samræmi við það sem stefnt var að, en embættið gerði ráð fyrir að bæta við sig þrjátíu til fjörutíu nýjum starfsmönnum í heildina. Starfsmenn sérstaks saksóknara verða á bilinu sjötíu til áttatíu þegar ráðningum nýrra starfsmanna lýkur. Áður hefur verið greint frá því að stefnt sé að því að öllum málum verði lokið hjá embætti sérstaks saksóknara fyrir árslok árið 2014.
Mest lesið Segjast komnir með nóg og ætla að gæta að framtíð Íslands Innlent Sérsveitin mætti í útilegu MRinga Innlent Einfaldlega nýnastistar sem þýði meira ofbeldi og átök Innlent Aðstæður þær bestu síðan 2021: Bílastæði við eldgosið að fyllast Innlent Óhollt magn brennisteinsdíoxíðs á höfuðborgarsvæðinu og Akranesi Innlent Lögreglan lýsir eftir Sindra Péturssyni Innlent Fundurinn vonbrigði: „Þetta leikrit er hafið“ Innlent Salibuna á sirkustjaldinu og lélegir listamenn Innlent Hæsta gildi brennisteinsdíoxíðs frá upphafi eldsumbrota Innlent Stal bíl og keyrði um flugbrautirnar Innlent Fleiri fréttir Hefur áhyggjur af málflutningi „taugaveiklaðrar“ stjórnarandstöðu Lokuð inni með lokað fyrir glugga í þrjá daga Fundurinn vonbrigði: „Þetta leikrit er hafið“ Búin að vera lokuð inni í þrjá daga vegna gosmóðunnar Vopnað rán og skartgripaþjófnaður í Reykjavík Einfaldlega nýnastistar sem þýði meira ofbeldi og átök Lögreglan lýsir eftir Sindra Péturssyni Fordæma Hamas og segja áform um „mannúðarborg“ óviðunandi Stofna grunnskóla fyrir einhverf börn í Garðabæ Loftgæði versnandi á gosstöðvunum Segjast komnir með nóg og ætla að gæta að framtíð Íslands Sex spænskar orrustuþotur á leið til landsins Hafa tapað tvö hundruð milljónum króna vegna fjársvika Hafa sótt um bráðabirgðaleyfi Vill vita hvaða samningar eru í undirbúningi gagnvart ESB Verði fram á nótt að slökkva eld í trjákurlinu Geta greint frá svörum Þorgerðar ef hún gefur leyfi Stal bíl og keyrði um flugbrautirnar „Það þarf ekki alveg að halda sig innandyra“ „Þetta eru markvissar aðgerðir til að brjóta niður menntastofnanir“ Aðstæður þær bestu síðan 2021: Bílastæði við eldgosið að fyllast Mesta mengun frá upphafi eldsumbrota og deilt um utanríkismálin Tveggja katta enn saknað eftir eldsvoða á Tryggvagötu Hæsta gildi brennisteinsdíoxíðs frá upphafi eldsumbrota Enn unnið í því að slökkva í trjákurlinu Enginn Vinnuskóli í Reykjavík í dag vegna gosmengunar Haldlagning á ketamíni hundraðfaldast á fjórum árum Salibuna á sirkustjaldinu og lélegir listamenn Óhollt magn brennisteinsdíoxíðs á höfuðborgarsvæðinu og Akranesi Þjóðarhreinsun eigi sér stað í heimalandinu Sjá meira