Ísland hefur staðið við framlög til Haítí 17. júlí 2010 06:00
Íslensk stjórnvöld hafa veitt 96,1 milljón króna í hjálpar- og uppbyggingarstarf á Haítí frá því að jarðskjálfti reið þar yfir fyrir rúmu hálfu ári. Þau hafa því nú þegar staðið við öll þau framlög sem lofað hafði verið, að sögn Auðuns Atlasonar, deildarstjóra í utanríkisráðuneytinu. Langstærstur hluti þess var kostnaður við ferð rústabjörgunarsveitar á vegum Landsbjargar. Sjö milljónir króna hafa farið til Matvælaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna og 25 milljónir til frjálsra félagasamtaka á borð við Hjálparstarf kirkjunnar og Rauða krossinn. Fréttastofan CNN hefur greint frá því að innan við tvö prósent af þeim 5,3 milljörðum Bandaríkjadala, sem ríkisstjórnir heims lofuðu til uppbyggingar á vegum Sameinuðu þjóðanna eftir jarðskjálftann, hafi skilað sér. Aðeins fjögur lönd hafi afhent fé til sérstakrar stofnunar Sameinuðu þjóðanna; Noregur, Brasilía, Eistland og Ástralía. Þessu fé var lofað í verkefnið á ráðstefnu í mars. Ríkisstjórn Íslands tilkynnti um öll sín framlög á vettvangi SÞ og er ekki meðal þeirra ríkja sem frétt CNN á við um að sögn Auðuns. Löndin sem ekki hafa staðið við sitt hafa tíma fram á mitt næsta ár til þess. Bandaríkin lofuðu til dæmis einum milljarði dollara og Venesúela 1,3 milljörðum, en hvorugt landið hefur nokkuð greitt. Venesúela hefur þó afskrifað hluta af skuldum Haítí. Spánn, Frakkland og Kanada eru einnig meðal landa sem eiga eftir að greiða háar fjárhæðir. Bill Clinton, fyrrum Bandaríkjaforseti og sérstakur erindreki SÞ fyrir Haítí, ætlar að þrýsta á ríkisstjórnirnar að standa við loforð sitt sem fyrst og veita upplýsingar um hvenær sé von á fé. Hann segist telja að efnahagsástand heimsins beri að hluta til ábyrgð á seinaganginum. Hjálparstarf hefur þó gengið vel samanborið við aðrar hamfarir, að sögn talsmanns SÞ á Haítí. Fleiri stofnanir starfa á svæðinu, til dæmis Læknar án landamæra og Rauði krossinn, ásamt einkasjóðum sem hafa verið stofnaðir vegna skjálftans. Læknar án landamæra hafa fengið um 112 milljónir dollara í styrki og eytt 65 þeirra nú þegar og Rauði krossinn hefur eytt 148 milljónum af þeim 468 sem hann hefur fengið. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um frekari framlög íslenska ríkisins til hjálparstarfsins en það kemur til greina, að sögn Auðuns. Það yrði þá gert í samvinnu við alþjóðastofnanir og frjáls félagasamtök eins og SÞ og Rauða krossinn.
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi Sjá meira