Innlent

Sækja slasaðan mann á Vífilsfell

Mynd/Vilhelm Gunnarsson

Björgunarsveitarmenn af höfuðborgarsvæðinu eru nú á leið upp á Vífilsfell til að sækja slasaðan mann. Maðurinn sem er á sextugsaldri er ekki talinn vera mikið slasaður en hann er af öllum líkindum handleggsbrotinn og lemstraður.

Maðurinn var á ferð með hópi göngufólks og varð fyrir grjóthruni. Leiðin á Vífilsfell, sem er Hengilssvæðinu, er vinsæl meðal göngufólks. Um 40 björgunarsveitarmenn taka þátt í aðgerðinni. Ef bera þarf manninn niður þarf mikinn mannskap því böruburður í fjallendi er afar erfitt verk og maðurinn er staddur efst í Vífilsfellinu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×