Innlent

Allir fá vinnu hjá Vinnuskóla Reykjavíkur

Vinnuskólinn segir að erfitt geti verið að uppfylla óskir þeirra sem sækja um núna til dæmis hvað varðar val á vikum. Allir sem skrái sig fái þó vinnu.
Vinnuskólinn segir að erfitt geti verið að uppfylla óskir þeirra sem sækja um núna til dæmis hvað varðar val á vikum. Allir sem skrái sig fái þó vinnu. Mynd/Stefán Karlsson
Allir sem skráðir eru í Vinnuskóla Reykjavíkur fá vinnu, en 2700 hafa þegar skráð sig. Formlegur umsóknarfrestur um sumarvinnu hjá Vinnuskóla Reykjavíkur er liðinn en enn er þó opið fyrir skráningar nemenda. Vinnuskólinn segir að erfitt geti verið að uppfylla óskir þeirra sem sækja um núna til dæmis hvað varðar val á vikum. Allir sem skrái sig fái þó vinnu.

Magnús Arnar Sveinbjörnsson, skólastjóri Vinnuskólans, segir að skráningar hafi farið vel af stað. Hann segir að ásóknin sé svipuð og í fyrra, en um 70 til 85% nemenda í unglingadeildum grunnskóla sækja vanalega um sumarstarf hjá vinnuskólanum. Meiri ásókn er í störf leiðbeinanda í ár, en umsækjendur í þau störf eru oft menntaskóla- og jafnvel háskólanemar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×