Slepptu átján tonnum af vatni 18. júlí 2010 12:39
Slökkviliðið var kallað út um klukkan hálf níu í gærkvöldi. Eldur logaði í mosa og sinu í hrauninu sunnan við Straumsvík og var mjög erfitt að komast að eldinum og því var óskað eftir aðstoð frá Landhelgisgæslunni. Þyrla Gæslunnar sótti sjó í fötu sem hékk neðan úr henni og sleppti yfir eldinn. Áætlað er að hún hafi sleppt átján tonnum af vatni. Sjö slökkviliðsmenn voru á vettvangi með einn dælubíl og sexhjól. Slökkviliðsmenn notuðu sexhjólið sem er með litlum vatnstanki til að ferja vatn að eldinum. Að sögn varðstjóra náði þyrlan að vinna töluvert á eldinum. Eldurinn var ekki mikill, en hann var staðbundinn og erfiður. Mikið af sprungum er á svæðinu og erfitt var fyrir slökkviliðsmenn að slökkva eld ofan í þeim. En að lokum tókst slökkviliðinu að koma stórum sérútbúnum bíl að eldinum. Menn óttuðust að eldur í sprungum næði að dreifa úr sér en gróður á svæðinu var þurr. Reykur frá eldinum sást vel frá Reykjavík og íbúar í Kársnesi í Kópavogi urðu varir við brunalykt úti. Engin byggð er nálægt svæðinu og því voru mannvirki aldrei í hættu . Ekki er vitað um upptök eldsins en ekki er útilokað að hann hafi kviknað af mannavöldum. Slökkvistarfi var lokið um klukkan ellefu í gærkvöldi og hafði þá staðið yfir í um þrjár klukkustundir.
Mest lesið Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Innlent Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Innlent „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Innlent Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra Innlent Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Innlent Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Innlent Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Innlent Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Innlent Gerðu umfangsmiklar árásir á olíuinnviði Rússa Erlent Ekið á upplýsingafulltrúa sem var að fara að missa vinnuna Innlent Fleiri fréttir Lúther sagður handtekinn vegna Straumsvíkurmálsins „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals „Sé ekki annað en að Samkeppniseftirlitið sé að sinna sínu hlutverki“ Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný „Alltaf litið á þetta sem eitthvað sem bráðamóttakan gerir“ Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Þrjú tilvik til rannsóknar: Bandero á ferðinni á hvalamiðum Þorgerður Katrín mun ekki mæta Gulla Þór Quang Le fer ekki langt Hundur hefur fundist dauður við Langjökul Sjá meira