Jómfrúarmenn með í Hörpunni 7. september 2010 08:30 Jakob Jakobsson, oftast kenndur við Jómfrúnna, mun opna nýjan stað í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpunni í samstarfi við son sinn, Jakob Einar.
Jakob Jakobsson og maður hans, Guðmundur Guðjónsson, ásamt syni Jakobs, Jakob Einar Jakobssyni, munu reka nýjan veitingastað í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpunni. Jakob eldri og Guðmundur eru flestum að góðu kunnir fyrir að eiga og reka smurbrauðsveitingahúsið Jómfrúna við Lækjargötu en Jakob yngri segir aðdáendur hennar ekkert þurfa að óttast, hún verði áfram á sínum stað í þeirra höndum. „Þetta verður algjörlega nýr veitingastaður með nýrri nálgun," segir Jakob Einar í samtali við Fréttablaðið. Þegar fólk kemur inn í Hörpuna verður miðasala á hægri hönd en Jómfrúin á þá vinstri. Þótt enn séu 239 dagar þar til húsið verður vígt er undirbúningur fyrir veitingasöluna kominn á fullt. Nýja veitingahúsið úr smiðju Jómfrúarmanna mun bjóða uppá norræna smárétti, kokteila, vín og bjór. „Þetta verður kjörið fyrir fólk að koma, setjast við barinn eða fá sér eitthvað smáræði í gogginn. Þetta verður svona stemningsstaðurinn í húsinu. Þegar fólk kemur inn í Hörpuna verður miðasala á hægri hönd en við á þá vinstri." Að sögn Jakobs Einars hélt pabbi hans að sér höndum í góðærinu þrátt fyrir mörg gylliboð um að færa út kvíarnar. „Menn héldu náttúrulega að hann væri eitthvað klikkaður þegar hann opnaði Jómfrúna á sínum tíma, að vera með veitingastað sem byði bara upp á smurbrauð," útskýrir Jakob sem bætir því hins vegar við að nýi staðurinn verði ekkert í líkingu við Jómfrúnna. Og hugsanlega verði ekki einu sinni boðið uppá smörrebröd upp á danska vísu eins og Jómfrúin er hvað þekktust fyrir.-fgg
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira