Kartöflupokakisurnar eru ennþá í Kattholti 22. desember 2010 09:00 Tvær af kisunum eru byrjaðar að mala, sem er gott batamerki.fréttablaðið/anton
Kisurnar níu sem fundust í kartöflupoka í Heiðmörk á fimmtudaginn eru nú allar í umsjón dýravinanna í Kattholti. Dýrin voru svo illa haldin eftir meðferð fyrri eiganda að þau eru enn þá hvekkt og bregðast illa við þegar reynt er að láta vel að þeim. „Tvær eru þó byrjaðar að mala hjá mér,“ segir Elín G. Folha, starfsmaður í Kattholti, og segir það gott batamerki. Fréttablaðið greindi frá því á laugardaginn að maður sem var á gangi með hundinn sinn í Heiðmörk gekk fram á poka sem í reyndust vera níu kettir. Þeir voru frá þriggja mánaða til eins árs gamlir. Hann ætlaði sér að reyna að finna eigendur fyrir fjóra af þessum níu en það bar ekki árangur. Hann kom köttunum þess vegna til starfsfólksins í Kattholti í gær. „Núna eru þeir allir hérna vesalingarnir litlu,“ segir Elín. Hún segir engar tilraunir hafa verið gerðar til að finna þeim ný heimili þar sem þeir séu ekki tilbúnir undir slík vistaskipti. Elín vill halda þeim í Kattholti fyrst um sinn en veit ekki hversu lengi. Það gætu þó verið mánuðir þangað til úr rætist. Í Kattholti eru þessa dagana um hundrað heimilislausir kettir en þeir hafa flestir verið á milli 150 og 200. „Þeir eldri dvelja oft lengi hérna hjá okkur því það eru kettlingarnir sem fólk vill,“ segir Elín. Hún segir að það algjöra þrautalendingu að láta svæfa dýrin, en stundum verði það ekki umflúið. - shá
Mest lesið Úlfar hættir sem lögreglustjóri Innlent Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Innlent Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Innlent Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Innlent Dr. Bjarni er látinn Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Innlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Innlent Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Innlent Fleiri fréttir Fá engar bætur fyrir stolin bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Yfir þrjú hunduð eftirskjálftar Mál Oscars sé barnaverndarmál en ekki útlendingamál Bein útsending: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Vara við aukinni hættu á gróðureldum á Austurlandi Stór skjálfti rétt hjá Grímsey Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Sjá meira