Á sjöttu milljón safnað fyrir börnin í Reykjadal 14. ágúst 2010 13:34 Frá sumarbúðunum í Reykjadal. Mynd/Lengi lifi Reykjadalur „
Söfnunin gengur stórvel og nú hafa um 5,6 milljónir safnast. Við eigum von á stórum gjöfum á morgun og á þriðjudaginn þegar gangan hefst," segir Sólveig Hlín Sigurðardóttir forstöðumaður Reykjadals. Í rúm 40 ár hefa verið starfræktar sumarbúðir og vetrardvöl í Reykjadal á vegum Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra fyrir fötluð börn og ungmenni. Vegna samdráttar blasir nú við að hætta þurfi starfinu í Reykjadal en um 15 milljónir þarf til að tryggja starfsemina áfram sem hingað til hefur verið fjármögnuð með fjármagni frá ráðuneytum og sveitarfélögum. Nýverið hófu starfsmenn og velunnarar Reykjadals fjársöfnun þar sem áheitum er safnað. Næstkomandi þriðjudag munu starfsmenn ganga með einhvern sitjandi í hjólastól frá Laugalandi í Holtum, sem eru einnig sumarbúðir fyrir fatlaða, til Reykjadals og þaðan að húsnæði Styrktarfélagsins að Háaleitisbraut í Reykjavík. Vegalengdin er um 130 kílómetrar. „Boltinn hefur rúllað ansi hratt," segir Sólveig. Ljóst sé að margir velviljaðir í þjóðfélaginu vilji leggja þessu málefni lið. „Þetta skal takast." Sólveig segir að forsvarsmenn Reykjadals og söfnunarinnar eigi von á góðum gjöfum þegar gangan hefst og á morgun en þá fer fram lokaball sumarbúðanna. Söfnunarsíðu átaksins - Lengi lifi Reykjadalur - er hægt að skoða hér. Hægt er að styrkja sumarbúðirnar með því að leggja inn á reikning 549-26-10 og kennitalan er 630269-0249. Þá hefur verið opnaður söfnunarsími. 904-1010 Þegar hringt er í númerið bætast 1000 krónur við næsta símreikning. 904-1030 Þegar hringt er í númerið bætast 3000 krónur við næsta símreikning. 904-1050 Þegar hringt er í númerið bætast 5000 krónur við næsta símreikning.
Mest lesið Kalli Snæ biðst afsökunar Innlent Bílstjóri ráðherra lagði ríkið Innlent Tilgáta um að launmorðingi hafi farið mannavillt þegar Jón Þröstur hvarf Innlent „Er allt komið í hund og kött?“ Innlent Húseigandinn Jón dansari segist koma af fjöllum Innlent Reykvíkingur ársins erlendis en fær að veiða í júlí Innlent Leikskólabarn með áverka en starfsmaður sýknaður Innlent Tilraunaverkefni hjá borginni á að koma ruslinu á réttan stað Innlent Lýsa eftir Hlyni Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás á meðan hann er grunaður um morð Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Hlyni Vandamenn megi ekki lengur hjálpa glæpamönnum Leikskólabarn með áverka en starfsmaður sýknaður Lagt hald á fíkniefni og búnað til framleiðslu Konan fær að dúsa inni í tvær vikur í viðbót Fimm í haldi vegna fíkniefnamálsins „Heilög skylda“ að málþæfa gegn „dellumálum“ í allt sumar Leitin að Jóni Þresti og hópmálsókn ferðaþjónustunnar Tomasz tekur við formennsku í innflytjendaráði Bein útsending: Réttlæti og ábyrgð – Vernd barna í Úkraínu „Er allt komið í hund og kött?“ Reykvíkingur ársins erlendis en fær að veiða í júlí Um níu þúsund umsóknir í Háskóla Íslands Tilgáta um að launmorðingi hafi farið mannavillt þegar Jón Þröstur hvarf Fangar fluttir á spítala nokkrum sinnum á ári vegna ofneyslu vímuefna Tilraunaverkefni hjá borginni á að koma ruslinu á réttan stað Kalli Snæ biðst afsökunar Bílstjóri ráðherra lagði ríkið Tilfinning hægri manna um að fréttir RÚV séu óháðar fer dvínandi Gengur hringinn til styrktar vannærðum börnum Þingmenn hneykslast á mótmælum við hátíðarathöfnina Ein bílferð jafngildi tuttugu þúsund mótorhjólaferðum Dæmdur fyrir líkamsárás á meðan hann er grunaður um morð Féll í hálku í sundi og fær bætur Hátt spennustig, ruslið sem ekki er hægt að endurvinna og kvennavaka Ótrúlegar myndir af krefjandi lendingu án nefhjóls Írskir lögreglumenn til Íslands vegna máls Jóns Þrastar Bréfið rímar ekki við fullyrðingar Kalla Snæ Hyggjast ekki greina frá nöfnum hinna látnu Skúringabúnaðurinn laus af segulómtækinu en ástand þess óljóst Sjá meira