Bíður milli vonar og ótta eftir fréttum 14. janúar 2010 03:30 Elda hefur ekki heyrt frá fólkinu sínu í Port-au-Prince. fréttablaðið/vilhelm
Elda Þórisson Faurelien talaði í síma við frænda sinn í Port-au-Prince klukkustund áður en jarðskjálftinn reið yfir í fyrrakvöld. Síðan hefur hún ekki heyrt af afdrifum hans, annars skyldfólks – þar á meðal bróður og fjölskyldu hans – né vina í borginni. Sama á við um starfsfólk og nemendur barnaskóla sem Elda stofnaði ásamt fleirum fyrir nokkrum árum. Látlausar tilraunir hennar í gær til að fá fréttir af sínu fólki báru ekki árangur. Elda á og rekur kaffihúsið Café D"Haítí við Tryggvagötu í Reykjavík ásamt eiginmanni sínum, Methúsalem Þórissyni. Þau kynntust þegar hann var við störf á Haítí og fluttust til Íslands fyrir tæpum fjórum árum. Þau segja landið einkar illa í stakk búið til að takast á við náttúruhamfarir á borð við þessar. Allir innviðir séu veikir; stjórnsýsla, heilbrigðiskerfi, samgöngu- og fjarskiptakerfi. Tvær aldir eru síðan landið varð síðast illa úti af völdum jarðskjálfta en sterkir fellilbyljir ríða þar jafnan yfir á haustin. Oft verður mannfall af þeirra völdum, stundum mikið. Á Café D"Haítí selja Elda og Methúsalem kaffi sem ræktað er á Haítí. Þau skipta við bændur í landinu og eiga við þá svonefnd sanngjörn viðskipti (fair trade). Þau langaði að gera eitthvað sem bæði þau sjálf og Haítí gætu haft hag af. Fjöldi fólks lagði leið sína á Café D"Haítí í gær. Vildi það spyrja Eldu frétta, sýna henni stuðning og jafnvel gefa peninga sem komið gætu að notum ytra. - bþs
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Sjá meira