Gjaldþrot Álftaness sveitarstjórn að kenna Boði Logason skrifar 23. júlí 2010 16:42
Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar um fjárhagsstöðu Álftaness segir að skuldir og aðrar fjárhagslegar skuldbindingar sveitarfélagsins sjöfölduðust á tímabilinu 2006 til 2009. Þar segir einnig að rekja megi erfiða stöðu sveitarfélagsins til ákvarðana sveitarstjórnar á fyrrnefndu tímabili. „Einkum ákvarðana um að semja við einkaaðila um að byggja sundlaug, íþróttahús og aðrar þjónustubyggingar og leigja síðan þessi mannvirki af þeim," segir í skýrslunni en samningarnir eru ýmist til 30 eða 50 ára og óuppsegjanlegir. Þá kemur fram að endurskoðendur sveitarfélagsins hafi frá árinu 2006 ítrekað varað við því að tekjur dygðu ekki til að standa undir rekstri. Í stað þess að bregðast við þessum aðvörunum hafi rekstur sveitarfélagsins verið þaninn út á hverju ári. Útþennslan hafi byggst á væntingum um að tekjur sveitarfélagsins myndu vaxa vegna sölu lóða og stöðugrar íbúa fjölgurnar. „Þessi útþensla hafi byggst á væntingum um að tekjur sveitarfélagsins myndu vaxa vegna sölu lóða og stöðugrar íbúafjölgunar. Að mati Ríkisendurskoðunar má draga í efa að þær væntingar hafi nokkru sinni verið raunhæfar, m.a. í ljósi þess hve mikið framboð var á lóðum annarsstaðar á höfuðborgarsvæðinu. Sveitarstjórnin hafi tekið of mikla áhættu með ákvörðunum sínum." Í skýrslunni er talið að bæjarstjórn og embættismenn bæjarins hafi í meginatriðum staðið formlega rétt að umræddum ákvörðunum. Þá hafi málsmeðferð og upplýsingagjöf sveitarfélagsins til yfirvalda að mestu verið í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga. Leigusamningar og lán sveitarfélagsins eru að stórum hluta bundin við gengi erlendra gjaldmiðla og því hafi fall krónunnar árið 2008 aukið vandann. „Ríkisendurskoðun telur að herða þurfi fjármálareglur sem gilda um sveitarstjórnarstigið, t.d. reglur sem setja skorður við því með hvaða hætti sveitarfélög geta stofnað til skuldbindinga. Einnig þurfi að efla eftirlit með fjárhagsstöðu sveitarfélaga. Brýnt sé að búa svo um hnúta að Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga geti að eigin frumkvæði látið gera úttektir á sveitarfélögum en þurfi ekki að bíða eftir því að þau leiti sjálf eftir aðstoð nefndarinnar, eins og núgildandi reglur gera ráð fyrir. Ríkisendurskoðun hefur einnig birt skýrslu um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til reksturs grunnskóla á Álftanesi. Fram kemur að kostnaður af rekstri grunnskóla er hlutfallslega meiri þar en í öðrum meðalstórum og stærri sveitarfélögum. Einkum megi rekja þetta til þess að fáir nemendur séu í hverjum bekk samanborið við aðra skóla af svipaðri stærð. Einnig þess að börn á grunnskólaaldri eru hærra hlutfall af íbúafjölda Álftaness en annarra sveitarfélaga. "
Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Erlent Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? Innlent „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Innlent Fleiri en einn hafi verið að verki Innlent Fleiri fréttir Staðan orðin „þokkalega góð“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Veðurspáin að bjarga miðasölu Þjóðhátíðar fyrir horn Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Níutíu prósent minkanna hafi ekki næstu daga af „Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Sjá meira