Reykjavíkurborg virkjar varúðaráætlanir vegna gossins Jón Hákon Halldórsson skrifar 19. apríl 2010 19:39 Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri hefur á undanförnum dögum fundað með starfsmönnum Reykjavíkurborgar og Almannavarnanefnd vegna mögulegra áhrifa eldgossins. Mynd/ Vilhelm.
Reykjavíkurborg hefur í varúðarskyni virkjað viðbragðsáætlanir sínar í samræmi við ákvarðanir Almannavarnarnefndar höfuðborgarsvæðisins, jafnvel þó að hverfandi líkur séu á að öskufall verði á höfuðborgarsvæðinu að mati Veðurstofu Íslands. Er það gert til að tryggja viðeigandi vöktun og undirbúning í ljósi eldgossins í Eyjafjallajökli. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum og vatnsbólum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri hefur á undanförnum dögum fundað með starfsmönnum Reykjavíkurborgar og Almannavarnarnefnd höfuðborgarsvæðisins vegna hugsanlegra áhrifa eldgossins. Borgarstjóri segir að borgaryfirvöld fylgist grannt með gangi mála. „Við höfum orðið vör við þörf borgarbúa fyrir upplýsingar. Það er okkar verkefni nú að sjá til þess að þjónusta og stofnanir borgarinnar séu undir það búin að bregðast við hugsanlegu öskufalli hér á höfuðborgarsvæðinu. Við höfum verið að virkja og yfirfara áætlanir og fylgjumst með þróun mála. Borgarbúar geta treyst því að verði breytingar á ástandinu munu borgaryfirvöld sinna upplýsinga- og viðbragðshlutverki sínu," segir Hanna Birna í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Viðbragðsteymi Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkurborgar fylgist með loftgæðum í borginni allan sólarhringinn í gegnum þrjár mælistöðvar. Að mati Heilbrigðiseftirlitsins er ekki ástæða til sérstakra varúðarráðstafana vegna hugsanlegs öskufalls í Reykjavík á þessari stundu. Ennfremur fylgist eftirlitið vel með vatnsbólum en talið er ólíklegt að neysluvatn Reykvíkinga spillist jafnvel þótt aska berist yfir borgina enda er neysluvatnið fengið af allnokkru dýpi úr miklum grunnvatnsstraumum. Tryggt verður að allar starfseiningar Reykjavíkurborgar fái ítarlegar upplýsingar í tengslum við hugsanlegt öskufall í borginni. Sérstaklega er fylgst með gangi mála í skólum og leikskólum borgarinnar. Upplýsingar um viðbrögð þeirra vegna hugsanlegs öskufalls er að finna á www.menntasvid.is og www.leikskolasvid.is.
Mest lesið Eldur í Elliðaárdal Innlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Innlent Fleiri fréttir Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Sjá meira