Starfshópur skipaður um breytingar á skattakerfinu 19. apríl 2010 15:50
Fjármálaráðherra hefur skipað starfshóp til að móta og setja fram heildstæðar tillögur um breytingar og umbætur á skattkerfinu.Í tilkynningu segir að starfshópnum er ætlað að skila áfangaskýrslu til fjármálaráðherra eigi síðar en 15. júlí nk. með helstu stefnumarkandi tillögum og tillögum um þær lagabreytingar sem hægt verði að leggja fram til afgreiðslu á haustþingi 2010. Skulu þær tillögur vera í samræmi við áætlun um jöfnuð í ríkisfjármálum og áætlanir um fjárlög fyrir árið 2011. Lokaskýrslu og heildartillögum skal skilað fyrir árslok 2010.Vinna hópsins er í beinu framhaldi af þeim breytingum sem gerðar voru á skattalöggjöfinni í tengslum við fjárlög ársins 2010 á síðasta ári. Þær voru miðaðar við að bæta afkomu ríkissjóðs í samræmi við áætlun um jöfnuð í ríkisfjármálum, en um leið að dreifa skattbyrði með sanngjörnum hætti og hlífa tekjulágum við skattahækkunum.Helstu sjónarmið sem starfshópurinn skal leggja til grundvallar:Að skattkerfið afli tekna í nægjanlegum mæli fyrir hið opinbera, stuðli að jöfnuði lífsskilyrða og hagkvæmri nýtingu framleiðsluþátta og auðlinda.Að leggja mat á skattareglur og þyngd skattlagningar á Íslandi í samanburði við lönd með sambærilegt og betra velferðarstig.Gæta þarf innbyrðis samræmis í álagningu skatta og í tekjuöflun hins opinbera almennt og skattkerfið þarf að stuðla að markmiðum stjórnvalda í félagsmálum, umhverfismálum og efnahagsmálum almennt.Æskilegt að skattkerfið sé einfalt og gagnsætt og því ekki ætlað stærra hlutverk á einstökum sviðum en það getur með góðum móti valdið.Starfshópinn skipa: Maríanna Jónasdóttir, fulltrúi fjármálaráðherra, sem jafnframt er formaður, Skúli Eggert Þórðarson, ríkisskattstjóri, einnig tilnefndur af fjármálaráðherra, Hrannar B. Arnarsson, fulltrúi forsætisráðherra, Bolli Þór Bollason, fulltrúi félagsmálaráðherra, Arnar Þór Sveinsson, fulltrúi efnahags- og viðskiptaráðherra og Hermann Sæmundsson, fulltrúi samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Indriði H. Þorláksson starfar með hópnum.
Mest lesið Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Erlent Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Innlent Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Innlent Tveir menn fjárkúguðu ungan dreng Innlent Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Innlent Pilturinn er fundinn Innlent Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Erlent Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Erlent Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Hlýnar um helgina Veður Fleiri fréttir Tveir menn fjárkúguðu ungan dreng Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Pilturinn er fundinn „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Sjá meira