Íslandskynning bönnuð börnum SB skrifar 20. júlí 2010 13:48 Senan umdeilda úr Inspired by Iceland myndbandinu.
Aðalmyndband Inspired by Iceland herferðarinnar hefur verið bannað börnum innan átján ára á vefnum YouTube. Þegar reynt er að opna myndbandið kemur tilkynning á skjáinn þar sem sagt er að notendur vefsins hafi tilkynnt að innihald myndbandsins eigi ekki erindi við börn. Einar Karl Haraldsson, formaður framkvæmdanefndar Inspired by Iceland, vissi ekki af málinu þegar Vísir hafði samband við hann. „Ætli þetta sé ekki út af nektarsenunni," sagði Einar Karl en í einu atriði myndbandsins sést fönguleg íslensk snót á Evuklæðum einum fata í heitri laug í guðsgrænni náttúrunni. Myndarlegur ungur maður sem jafnframt er nakinn hleypur til stúlkunnar og þau fallast í faðma og kyssast í kvöldsólinni. Þetta atriði hefur reyndar verið klippt úr myndbandinu á öðrum vinsælum myndbandavef Vimeo. Þar má finna báðar útgáfur myndbandsins og er útgáfan þar sem sést í hin nöktu náttúrubörn talsvert vinsælli - 1,2 milljónir hafa borið hina íslensku fegurð augum á meðan hin ritskoðaða útgáfu hefur aðeins fengið 20 þúsund heimsóknir. „Við tókum þá ákvörðun að vera með þetta í tveimur útgáfum þar sem nektarsenan passar ekki í sumum löndum eða hjá ákveðnum hópum," segir Einar Karl. Spurður hvort aldurstakmarkið á Youtube geti haft slæm áhrif á herferðina segist hann ekki halda það. „Nei, ætli það nokkuð. Ég hef bara ekki heyrt um þetta áður."
Mest lesið Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Erlent Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Erlent Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Innlent Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Innlent Alelda bíll í Reykjanesbæ Innlent Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Innlent Paul Watson afar ánægður með handtökuna Innlent Fleiri fréttir Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Bandero hafi beitt hættulegum aðferðum: „Þverskallaðist við að fylgja og hlýða fyrirmælum“ Sérsveitaraðgerðir á hvalaslóð og Verslunarmannahelgin að ganga í garð Samtökin hafi bjargað lífi allt að þrjátíu hvala Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Sjá meira