Notuðu garðklippur á fingur 30. apríl 2010 05:15 Garðklippur voru notaðar til að reyna að kúga fé út úr manni.
Þrír menn eru nú fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur sakaðir um að hafa svipt mann frelsi sínu og klippt hann í fingurinn með garðklippum í því skyni að kúga af honum hálfa milljón króna. Mönnunum er gefið að sök að hafa í mars á síðasta ári leitt manninn nauðugan að bifreið og ýtt honum í farangursrými hennar. Tveir mannanna hafi slegið fórnarlambið ítrekað í andlit með krepptum hnefa. Í Öskjuhlíð veittust þremenningarnir að honum í sameiningu með höggum og spörkum í andlit og líkama, auk þess sem einn þeirra sló manninn með steini í hægri öxl, sparkaði í hnakka hans og annar árásarmannanna klippti með garðklippum í litla fingur vinstri handar hans. Í kjölfarið hótuðu þeir manninum frekari líkamsmeiðingum ef hann útvegaði ekki hálfa milljón króna innan tiltekins frests. Enn fremur létu þeir hann hringja í systur sína og hótuðu henni því að beita fórnarlambið frekara ofbeldi ef hún ekki greiddi þeim hálfa milljón króna. Því næst færðu þeir manninn í farangursrými bifreiðarinnar og óku með hann að slysadeild Landspítala – háskólasjúkrahúss í Fossvogi þar sem þeir skildu hann eftir. Hann reyndist vera með umtalsverða áverka. - jss
Mest lesið Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Fleiri fréttir Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Sjá meira