Kynjakvóti flækti endurröðun á lista 30. apríl 2010 02:00 Guðrún Valdimarsdóttir.
Kynjakvóti á framboðslista Framsóknar í Reykjavík flækti endurröðun eftir að Guðrún H. Valdimarsdóttir hagfræðingur, sem var í öðru sæti, sagði sig frá listanum á mánudag. Niðurstaðan varð að Valgerður Sveinsdóttir lyfjafræðingur færist upp um sæti og skipar annað sætið. Þuríður Bernódusdóttir færist úr 11. sæti í það þriðja en Bryndís Guðmundsdóttir bókari kemur ný inn og mun skipa 11. sætið. Einar Skúlason, oddviti flokksins í Reykjavík, segir að upplýsingarnar, sem Guðrún hafi að eigin frumkvæði nefnt, um þátt fyrirtækis eiginmanns hennar í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis hafi vakið mikinn óróleika á listanum. „Menn voru ekki á eitt sáttir um hvernig bæri að leysa málið og frambjóðendur óttuðust umræðuna sem kynni að vakna í aðdraganda kosninga,“ segir hann. Mat manna hafi því verið að betra væri að biðja Guðrúnu að víkja sæti fremur en að hætta á að aðrir segðu sig frá framboðinu. Hann telur að Guðrún sé á vissan hátt fórnarlamb þeirrar tortryggni og reiði sem nú sé ríkjandi í samfélaginu. Hann áréttar að þeir sem mestar áhyggjur hafi haft af upp kominni stöðu hafi ekki einskorðast við ákveðna hópa innan flokksins. „Þarna var líka fólk úr stuðningsmannahópi Guðrúnar.“ Guðrún segir sjálf að ákvörðunin um að biðja hana að víkja hafi komið mjög á óvart. Hún hafi viljað hafa vaðið fyrir neðan sig og benda á að nafn fyrirtækis eiginmanns hennar kæmi fyrir í skýrslu rannsóknarnefndarinnar, ef svo ólíklega myndi vilja til að pólitískir andstæðingar „legðust svo lágt“ að reyna að sverta hana með því. „Ég er hætt í pólitík og mun aldrei aftur reyna fyrir mér á þeim vettvangi,“ segir hún og kveðst vilja einbeita sér að öðrum málum.- óká
Mest lesið „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fleiri fréttir Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Sjá meira