Slóvenskur rokkari málar hraun 10. febrúar 2010 04:00 Slóveninn Jurij Asl Kelhar sýnir myndir af hrauni. Fréttablaðið/Vilhelm „
Hraunið er mér innblástur,“ segir slóvenski myndlistarmaðurinn Jurij Asl Kelhar sem nú sýnir verk sín í Reykjavík Art galleríinu við Skúlagötu. „Ég komst að því að amma mín og afi eru íslensk – þau fluttu til Slóveníu á sínum tíma – og þess vegna meðal annars kom ég hingað. Ég hrífst af hrauni, bæði þegar það er rauðglóandi og líka þegar það er kalt og storknað. Ég stefni að því að halda fleiri sýningar hér á næstunni og það verða líka myndir af hrauni. Það er það eina sem kemst að hjá mér!“ Júríj er 37 ára gamall jarðfræðingur og félagsfræðingur. Hann hefur víða komið við, meðal annars tengst rokkinu. „Ég var söngvari í dauðarokkshljómsveit í Slóveníu á 9. áratugnum, en við vorum ekkert sérlega góðir svo ég fór fljótlega að einbeita mér að því að skrifa um dauðarokk í tímarit sem hét No Name. Það var eiginlega fyrsta tímaritið í heiminum sem skrifaði eingöngu um dauðarokk og var dreift um allan heim.“ Eftir dauðarokkið gekk Júrij til liðs við þekktustu hljómsveit Slóveníu, iðnaðarrokkbandið Laibach, sem spilaði á Íslandi 2006. Hann vann einnig náið með listahreyfingunni NSK (Neue Slowenische Kunst) sem grafískur hönnuður og fleira. Sýning Jurij stendur yfir út þessa viku og er opin daglega á milli kl. 14 og 17. Í galleríinu fer einnig fram sýning á verkum Laufeyjar Johansen, sem málar sýnir frá plánetunni Vúlkan. - drg
Mest lesið Rassaumhirða karla í sókn Lífið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira