Segir engan fylgjast með Actavis samfélaginu til tjóns Þorbjörn Þórðarson. skrifar 27. júlí 2010 12:15
Heimilislæknir í Reykjavík segir að lyfjafyrirtækið Actavis hafi reglulega tekið lyf úr sölu án nokkurra skýringa sem hafi valdið sjúklingum miklum óþægindum. Hann leiðir líkum að því að fyrirtækið láti gróðasjónarmið ráða för, hætti að selja lyf sem skili litlum gróða og skeyti þannig ekkert um hagsmuni sjúklinga. Sveinn Rúnar Hauksson, heimilislæknir, segir í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag að nýlega hafi brugðið svo við fyrir nokkrum vikum að Kínin-töflurnar frá Actavis hafi ekki fengist lengur en lyfið hafi verið notað af fjölda fólks sem eigi við fótakrampa og sinadrátt að stríða, ekki síst á nótunni. Actavis hafi ákveðið að hætta framleiðslu lyfsins hér á landi, enn eitt lyfið hafi þannig horfið á þennan hátt, án nokkurs fyrirvara og engar skýringar gefnar. Sveinn Rúnar sagði í samtali við fréttastofu í morgun að af öðrum lyfjum sem hafi horfið með þessum hætti megi nefna sýklalyfið doxytab, þunglyndislyfið amilín sem var notað reglulega sem svefnlyf, ýmis bjúglyf og skjaldkirtilslyf. Síðan hafi þessi lyf komið aftur á markaðinn undir öðrum heitum og með miklu hærri verðmiða. „Þetta virðist vera býsna augljóst þetta ferli. Framleiðslu hér á landi á ódýrum lyfjum er hætt og stuttu síðar er hafinn innflutningur á sams konar lyfjum, nema þau eru mun dýrari og það er sama fyrirtækið sem á í hlut. Og fyrirtækið [Actavis] virðist geta stjórnað þessu sjálft og það er ekkert lyfjaeftirlit, lyfjastofnun eða heilbrigðisráðuneyti sem virðist geta komið í veg fyrir að svona háttalag geti átt sér stað, sjúklingum til óhagræðis og samfélaginu öllu til skaða," segir Sveinn Rúnar Hauksson í samtali við fréttastofu. Íslenski lyfjamarkaðurinn er að stærstu leyti samheitalyfjamarkaður. Hjördís Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Actavis, segir að fyrirtækið hafni alfarið ummælum Sveins Rúnars. Lyfjamarkaðurinn hér á landi sé opinn og Actavis sé ekki með einokunarstöðu á honum. Hún segir að fjölmörg dæmi séu um að samheitalyf Actavis hafi sparað sjúklingum og samfélaginu mikla fjármuni. Þá segir Hjördís að lyfið Kínin, sem Sveinn Rúnar nefni, muni koma aftur á markaðinn og þá verði það ódýrara í heildsölu. Hún segir að lyfið hafi verið tekið af markaði þar sem framleiðslu þess á Íslandi hafi verið hætt vegna gamalla framleiðsluhátta. Lyfið sé ekki lífsnauðsynlegt lyf, í þessu samhengi megi nefna að af öllum Norðurlöndunum sé lyfið eingöngu á markaði í Svíþjóð. Eitt af því sem Sveinn Rúnar gagnrýnir sérstaklega, er einmitt að framleiðslu lyfsins hafi verið hætt hér á landi.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira