Frjálsi breytti gengistryggðum lánasamningi 14. júlí 2010 18:53
Frjálsi fjárfestingabankinn breytti skilmálum á gengistryggðum lánasamningi hjá viðskiptavini sem ætlaði að nýta sér nýlegt úrræði bankans. Talsmaður neytenda varar fólk við að skrifa undir slíkar skilmálabreytingar. Frjálsi fjárfestingabankinn var fyrstur af bönkunum til að bjóða viðskiptavinum með erlend íbúðalán að greiða fimm þúsund krónur af hverri milljón upphaflegs höfuðstóls lánsins, þar til Hæstiréttur sker endanlega úr um óvissuna sem ríkir um erlend lán. Viðskiptavinur Frjálsa, sem ætlaði að nýta sér þetta úrræði hafði samband við fréttastofu í gær en honum brá í brún þegar hann sá skjölin sem hann átti að undirrita. Upphaflega skrifaði hann undir myntkörfulán í íslenskum krónum. En í nýja skjalinu sem hann átti að undirrita í síðustu viku var upphafleg lánsfjárhæð hins vegar komin í erlenda mynt, japönsk yen og svissneska franka. Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, segir að óþarfi sé að fara í skilmálabreytingar á lánum vegna þessa tímabundna úrræðis. „Í öðru lagi finnst mér ankannalegt að vera að snúa þessu við þannig að lán sem er augljóslega gengistryggt og ólögmætt samkvæmt dómafordæmi Hæstaréttar að því sé breytt samkvæmt skilmálabreytingu í erlent lán sem er löglegt," segir Gísli. Hann efast um að slík skilmálabreyting standist lagalega. „Ég efast um að þetta standist, svona breyting, en samt vara ég fólk við að skrifa undir þetta án fyrirvara," segir Gísli. Samkvæmt upplýsingum frá Frjálsa fjárfestingabankanum hefur umræddu eyðublaði nú verið breytt. Inn í nýja eyðublaðið er kominn fyrirvari um að skuldari fyrirgeri ekki betri rétti sínum við undirritun samkomulagsins. Ekki liggur fyrir hversu margir viðskiptavinir Frjálsa skrifuðu undir gamla eyðublaðið en það var við líði í um tvær vikur. Þá er ekki víst hvort það muni hafa nokkur áhrif á réttarstöðu fólks, þegar kemur að því að skera úr um lögmæti lánanna.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Sjá meira