Ofgreidd lán líklega ekki endurgreidd 14. júlí 2010 05:00
Ólíklegt er að þeir viðskiptavinir eignaleigufyrirtækisins Avant sem hafa greitt of mikið af bílalánum sínum fái endurgreitt nú þegar óskað hefur verið eftir því að Fjármálaeftirlitið skipi bráðabirgðastjórn yfir félagið. Þetta segir Heimir Haraldsson, stjórnarformaður móðurfélagsins Askar Capital. Stjórn Askar Capital samþykkti í gær að óska eftir slitameðferð á félaginu. Samhliða því kom ósk stjórnar Avant um að Fjármálaeftirlitið skipi bráðabirgðastjórn yfir félagið. Í fréttatilkynningu frá Askar Capital kemur fram að nýlegur dómur Hæstaréttar um ólögmæti gengistryggingar lána hafi mikil áhrif á efnahag fyrirtækjanna. Eignir Avant hafi verið metnar á um 23 milljarða króna 31. maí síðastliðinn en eftir dóminn séu þær metnar á bilinu níu til þrettán milljarða króna eftir því hvaða vaxtaviðmiðun er notuð. Enn fremur segir í fréttatilkynningunni að vegna óvissu um vaxtaútreikningana hafi kröfuhafar ekki komist að niðurstöðu um fjárhagslega endurskipulagningu Avant. Þar sem endurskipulagningin er óvissu háð og eiginfjárstaða félagsins neikvæð um að lágmarki tíu milljarða telur stjórn félagsins sig ekki hafa umboð til áframhaldandi setu. Staða Askar Capital er mjög háð afkomu Avant. Eiginfjárstaða Askar var metin jákvæð um 3,5 milljarða hinn 31. maí síðastliðinn en í kjölfar dómsins er hún talin neikvæð um 3,5 milljarða þar sem sjö milljarða króna krafa á Avant er talin töpuð. Þar sem ekki liggur fyrir samkomulag við kröfuhafa um endurskipulagningu hefur stjórn Askar því samþykkt að óska eftir slitameðferð á félaginu. FME sendi frá sér tilkynningu í gærkvöldi um að bráðabirgðastjórnin hefði verið skipuð. Í henni sitja Friðjón Örn Friðjónsson hæstaréttarlögmaður, sem verður formaður, Hulda Rós Rúriksdóttir hæstaréttarlögmaður og Ljósbrá H. Baldursdóttir, löggiltur endurskoðandi. Starfsmenn Askar Capital eru 23 og missa nú allir vinnuna. Að sögn Benedikts Árnasonar forstjóra er hins vegar líklegt að einhverjir starfsmannanna taki sig saman um stofnun fyrirtækis sem muni halda áfram að þjónusta einhverja viðskiptavini bankans, sem eru á fjórða tug fjárfesta.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent Fleiri fréttir Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Sjá meira