Undrast stefnubreytingu Jóhönnu 17. október 2010 16:00 Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, undrast það sem hann kallar 180 gráðu stefnubreytingu Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, kemur kemur að skuldamálum heimilanna og hugmyndunum um niðurfærslu lána. Þorsteinn og Ragnar Arnalds, fyrrverandi ráðherra og þingmaður Alþýðubandalagsins voru gestir í þætti Sigurjóns M. Egilssonar á Bylgjunni í morgun. „Það er mikill ábyrgðarhluti, svo ég noti nú mjög vægt orðalag, að taka 180 gráðu stefnubreytingu í svona stóra máli á einum degi og stilla sér upp og segja: Nú styð ég almenna niðurfærslu skulda. Fara í einhverjar fundaræfingar koma svo eftir tvær vikur og segja: Nú ég er ég hætt við að styðja almenna niðurfærslu skulda," sagði Þorsteinn og bætti við að Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, hefði verið mun ábyrgari í yfirlýsingum sínum. „Þetta er ábyrgðarleysi sem ég skil ekki hvernig Alþingi getur sætt sig við."Ekki hægt að skýla sér á bakvið aðra Þorsteinn sagði ríkisstjórnina varpa ábyrgð yfir á aðra með því að segja að Íbúðalánasjóður vilji ekki afskrifa lán. „Það er ríkisstjórnin sem ræður yfir Íbúðalánasjóði og það er ríkisstjórnin sem á Landsbankann. Hún getur ekki varið sig með því að segja það eru vondir menn í Íbúðalánasjóði, því það er ríkisstjórnin sem ræður þessum tveimur stofnunum." Þá sagði Þorsteinn að það væri fullkomlega óábyrgt að ætlast til þess að stjórnendur lífeyrissjóðanna fremji refsiverðan verknað til að bjarga ríkisstjórninni í augnabliks vandræðum. „Ef forstöðumenn lífeyrissjóðanna hefðu samþykkt kröfur forsætisráðherra og dómsmálaráðherra hefði það verið refsiverður verknaður sem þeir hefðu endað í tugthúsinu fyrir að framkvæma."Stóryrði Þorsteins Ragnar tók ekki undir með Þorsteini. „Mér finnst þetta vera nokkuð mikil stóryrði hjá Þorsteini," sagði Ragnar og bætti við: „Þetta samráðsferli hefur skýrt málin verulega. Bæði fyrir stjórnmálamönnum og almenning í landinu." Hægt er að hlusta á viðtalið hér.
Mest lesið Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Innlent „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara Innlent Fleiri fréttir „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Sjá meira