Innlent

Stutt í að nýr dómari verði skipaður

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Nýr hæstaréttardómari verður skipaður um eða eftir helgi, segir Ögmundur Jónasson, dóms- og mannréttindamálaráðherra, við Vísi.

Hjördís Björk Hákonardóttir hæstaréttardómari lét af störfum þann 1. ágúst síðastliðinn. Dregist hefur að skipa nýjan dómara vegna þess að skipan nefndar sem mat hæfni umsækjenda dróst.

Nefndin skilaði af sér í síðustu viku og var álit hennar birt í gær á vef dóms- og mannréttindamálaráðuneytisins. Umsækjendur um stöðuna voru fjórir. Af þeim voru þeir Viðar Már Matthíasson, prófessor við lagadeild  Háskóla Íslands, og Þorgeir Örlygsson, dómari við EFTA-dómstólinn í Lúxemborg, metnir hæfastir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×