Innlent

Perlan bundin við bryggju í Eyjum

Sanddæluskipið Perlan.
Sanddæluskipið Perlan. MYND/Óskar P. Friðriksson

Sanddæluskipið Perlan, sem á að dæla sandi úr Landeyjahöfn til að gera hana siglingafæra fyrir Herjólf, liggur bundin við bryggju í Vestmannaeyjahöfn, þar sem ekki hefur enn viðrað til sanddælingar úr Landeyjahöfninni.

Horfur eru heldur ekki góðar því spáð er stormi, við Suðruströndina þegar líður á daginn. Nú er orðin vika síðan Herjólfur sigldi síðast til Landeyjahafnar, en skipið siglir þess í stað til Þorlákshafnar, eins og gert var áður en Landeyjahöfn kom til sögunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×