Tveggja ára fangelsi fyrir að kveikja í á Tryggvagötu 14. september 2010 13:18
Auðun Þorgrímur Þorgrímsson var í gær dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir brennu en hann bar eld að íbúð að Tryggvagötu í Reykjavík í janúar í fyrra. Maðurinn var sakfelldur fyrir að hafa hellt bensíni úr plastbrúsa inn í stigagang húsnæðisins og á gólf jarðhæðar hússins. Hann kveikti síðan í bensíninu og telur dómari að hætta hafi hlotist af. Húsið varð alelda og komst einn íbúi hússins, með naumindum út áður en eldurinn breiddist út. Hinn ákærði játaði sök í málinu og fyrir dómi kvaðst hann hafa komist að því að fyrrum eiginkona hans, sem þarna átti heima, hefði verið í tygjum við tvo aðra karlmenn sem hún hefði einnig haft fé af. Hún hafi hringt í hann fyrr um morguninn og vakið hann en hann hafði verið á nokkurra daga fylliríi. Hún hafi verið „hálf geggjuð" eins og hann orðaði það. Hann hafi þá í reiði tekið „þá skyndiákvörðun að loka þessu greni" með því að kveikja í því. Hafi hann komið því strax í verk með því að fara þangað og hella þar bensíni úr plastbrúsa sem hann vissi að var í baðherbergi á efri hæð hússins ásamt öðrum eldfimum efnum tilheyrandi tælenskum veitingastað í nálægu húsi. Í dómnum segir ennfremur að hann hafi verið með eldspýtur á sér enda hafi hann reykt á þessum tíma. Segist hafa gengið úr skugga um að enginn væri í húsinu Að sögn mannsins voru útidyrnar ólæstar, enda læsingin ónýt. „Hafi hann tekið bensínbrúsann þarna inni og rekið út stúlku sem þarna var inni. Þá hafi hann gætt að því hvort fleiri væru í húsinu með því að líta inn í íbúðarherbergin. Hann hafi svo hellt bensíninu yfir stigann og kveikt í. Að þessu loknu hafi hann farið heim til sín." Maðurinn fullyrti ennfremur að fyrir utan leiguherbergi hafi í húsinu margs konar starfsemi viðgengist, „svo sem vændi, kjötiðnaður fyrir tælenskan veitingastað, fíkniefnasala, viagra-dreifing, inn- og útflutningsverslun og fleira. Hann kveðst hafa heyrt að til stæði að rífa húsið og byggja nýtt á lóðinni." Konan sem var inni í íbúðinni skýrði frá því að hún hafi verið nývöknuð þegar hún hafi heyrt skrölta í póstlúgunni. Þegar hún hafi að gáð sá hún hvar einhver tróð sígarettu inn um lúguna. „Hafi hún opnað dyrnar og spurt hvað væri á seyði en maðurinn þá ýtt henni frá og út úr húsinu. Hann hafi svo kveikt í bensíni en hún hlaupið út á veitingastofuna Krua Thai. Hún segist aðspurð ekki hafa orðið vör við það að maðurinn aðgætti hvort fólk væri þarna áður en hann kveikti í," að því er segir í dóminum. Dómari hafnaði viðbáru mannsins Að teknu tilliti til framburðs konunnar ákvað dómari því að hafna viðbáru Auðuns um að hann hafi gengið úr skugga um að enginn væri í húsinu, og ákvað dómari því að sakfella hann fyrir brot gegn 162. grein almennra hegningarlaga. Maðurinn var metinn fyllilega sakhæfur og því dæmdur til að sæta fangelsi í tvö ár.
Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent „Fólk er ekki heimskt“ Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Fleiri fréttir Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Sjá meira