Innlent

Þingfundi frestað vegna ríkisstjórnarfundar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Einar K. Guðfinnsson gerði athugasemdir við það að þingfundi skyldi frestað. Mynd/ Vilhelm.
Einar K. Guðfinnsson gerði athugasemdir við það að þingfundi skyldi frestað. Mynd/ Vilhelm.
Umræðum um skýrslu þingmannanefndar sem fjallaði um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis verður framhaldið í dag.

Umræðurnar áttu að hefjast klukkan hálfellefu en þingfundi var frestað um fimmtán mínútur. Ástæðan var sú að ráðherrar gátu ekki mætt til þingfundar sökum þess að ríkisstjórnarfundur tafðist.

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins gerðu athugasemdir við þetta. Einar K. Guðfinnsson sagði þetta meðal annars sérstaklega ámælisvert í ljósi þess að Atli Gíslason, formaður þingmannanefndarinnar, sagðist í gær vera með sjálfstæðisyfirlýsingu Alþingis í farteskinu þegar að hann mælti fyrir skýrslu nefndarinnar í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×