Innlent

Átján nauðungarsölur á Ísafirði

Fyrstu átta mánuði ársins voru 18 fasteignir seldar nauðungarsölu hjá Sýslumanninum á Ísafirði. Á sama tíma í fyrra voru eignirnar aðeins átta. Þegar litið er yfir allt síðasta ár voru 23 eignir seldar nauðungarsölu. Því er ekki hægt að fullyrða miðað við þessar upplýsingar að ástandið hafi versnað milli ára.

Samkvæmt upplýsingum frá sýslumannsembættinu á Ísafirði dreifast nauðungarsölur á ólíkan hátt yfir árið á milli þessara ára. Flestar nauðungarsölur á síðasta ári fóru fram í nóvember og desember á meðan fjöldi nauðungarsalna í ár hefur þegar farið fram á vor- og sumarmánuðunum.

Beiðnir um nauðungarsölu það sem af er ári eru 54 en eins og fyrr segir hafa átján eignir þegar verið seldar. Á sama tíma í fyrra voru beiðnirnar mun fleiri, eða 76, og yfir allt síðasta ár bárust beiðnir um nauðungarsölu 108 eigna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×