Innlent

17 ára á ofsahraða án réttinda og undir áhrifum fíkniefna

Mynd/Anton Brink
Sautján ára piltur var handtekinn um klukkan átta í kvöld fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna á ofsahraða á Reykjanesbraut við Molduhraun. Pilturinn sinnti í fyrstu ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og ók yfir á rauðu ljósi, en eftir skamma eftirför nam hann staðar við Vífilsstaðaveg. Lögreglumenn á tveimur bifreiðum tóku þátt í eftirförinni.

Að auki ók pilturinn réttindalaus en hann mældist á 169 km. hraða, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá lögreglu. Tvö önnur ungmenni á svipuðu reiki voru í bifreiðinni. Barnaverndaryfirvöldum hefur verið tilkynnt um málið, að sögn lögreglu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×