Greiddu 100 þúsund í fundarlaun fyrir köttinn Mjása Erla Hlynsdóttir skrifar 13. september 2010 13:37 Kötturinn Mjási í fangi Júlíusar Sigurjónssonar
Kötturinn Mjási var orðinn hrakinn og horaður þegar hann fannst eftir tveggja vikna útlegð á Selfossi. Eigendur hans voru úrkula vonar um að hann kæmi aftur í leitirnar og ákváðu því að heita 100 þúsund krónum í fundarlaun. Stuttu síðar komu þrír fimmtán ára unglingar færandi hendi meö Mjása og tóku eigendur hans gleði sína á ný. Kristine Sigurjónsson, annar eigandi Mjása, segist hafa verið mjög áhyggjufull enda hafði Mjási verið lengi týndur. Kristine og maðurinn hennar, Júlíus Sigurjónsson, búa í Kópavogi en þau höfðu sett Mjása í pössun hjá vinafólki á Selfossi. Greint var frá þessu í Dagskránni, fréttablaði Suðurlands. Mjási, sem er 3ja ára gamall hvítur persi, er inniköttur og hefur því enga reynslu af því að veiða sér til matar eða bjarga sér úti á annan hátt. „Hann komst út um glugga hjá þeim á öðrum degi. Við vorum strax mjög hrædd um hann því hann er ekki vanur að vera úti," segir Kristine í samtali við Visir.is. „Til að hvetja til þess að fólk leitaði að honum ákváðum við að heita 100 þúsund krónum í fundarlaun. Við bjuggumst ekki við því að fólk myndi nenna að leita ef fundarlaunin væru lægri," segir hún. Unglingarnir fundu Mjása á leiksvæði við Heiðaveg á Selfossi þar sem hann hafði komið sér upp bæli. Tvær vikur eru síðan Mjási fannst. Vegna takmarkaðrar veiðireynslu grenntist hann mikið á meðan hann var týndur en hefur nú náð aftur fyrri þyngd enda í góðu yfirlæti í Kópavoginum að nýju. Kristine segir að þeim hjónum hafi fundist það vera skylda sín að gera allt sem þau gátu til að Mjási fyndist. „Okkur þykir alveg ofboðslega vænt um hann. Þess vegna ákváðum við að bjóða þessi fundarlaun," segir hún.
Mest lesið Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári Innlent Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Innlent Fangelsaður fyrir innbrot á dvalarstað Taylor-Joy Erlent Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Innlent Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Innlent „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Innlent Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Innlent Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Innlent Fleiri fréttir Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Tveggja turna tal í Reykjavík Tillaga um „hlaðborð lausna“ felld Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Sérsveitin brást við slagsmálum á Selfossi: „Í það minnsta kylfa notuð“ Telja eðlilegt að gusurnar greiði gjald Rannsókn hófst eftir tilkynningu starfsmanns Rannsókn á andlátinu hófst eftir tilkynningu starfsmanns „Af öllum vondu málum ríkisstjórnarinnar finnst mér þetta það versta“ Starfsmenn á bráðamóttöku með berkla en ekki taldir smitandi Snjóleysi í Reykjavík í janúar ekki einsdæmi en afar fátítt Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Borgarstjórn vill að börn fái frítt í Strætó Unglingaofbeldi eykst: „Slagsmál geta hreinlega endað með manndrápi“ Grafið í háspennustreng í Urriðaholti Skæð fuglaflensa í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Andlát í Eyjum til rannsóknar og listería á Vitatorgi Ekki staðfest að veikindi fimm tengist listeríu í salati Árekstur í Urriðaholti Miðflokkurinn býður fram í Vestmannaeyjum Kona kastaði flösku í höfuð manns Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Sjá meira