Íslenski veruleikinn elti kvikmyndahandritið 1. febrúar 2010 02:15 Mikið ævintýri Hjálmar Einarsson segir það hafa verið mikið ævintýri að taka upp kvikmynd sína, Boðbera. Darri Ingólfsson leikur aðalhlutverkið í myndinni. Fréttablaðið/vilhelm
Boðberi er íslensk kvikmynd sem fjallar um venjulegan mann sem skyndilega fær vitranir um lífið eftir dauðann. Kvikmyndin er í leikstjórn Hjálmars Einarssonar og á meðal leikenda eru Darri Ingólfsson, Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir, Magnús Jónsson og Jón Páll Eyjólfsson.Myndin hefur verið nokkurn tíma í framleiðslu en að sögn Hjálmars er allri eftirvinnu nú að mestu lokið og hægt verður að bera afraksturinn augum innan skamms. Auk þess að leikstýra kvikmyndinni skrifaði Hjálmar einnig handritið að henni og segist hann hafa gert það á mettíma. „Ég bjó í Prag í fimm ár og þegar ég flutti heim í byrjun árs 2008 leið mér eins og útlending í eigin landi. Á stuttum tíma voru risin hverfi sem ég þekkti ekki og maður sá byggingakrana á hverju götuhorni og fann hvernig þetta gróðraæði hafði tröllriðið öllu. Ég fór að velta þessu aðeins fyrir mér og byrjaði að skrifa handritið að Boðbera,“ útskýrir Hjálmar. Hann segir að myndin hafi verið skotin fyrir hrun og því hafi það komið honum á óvart hversu vel rættist úr söguþræði kvikmyndarinnar. „Myndin fjallar svolítið um hvernig venjulegt fólk rís upp gegn yfirvaldinu og þegar raunveruleikinn fór að elta söguþráðinn varð maður uggandi. En vonandi rætist ekki úr meiru því þá færi illa fyrir sumum.“ Hjálmar segir að það hafi verið mikið ævintýri að taka upp kvikmyndina, en alls komu hátt í þriðja hundrað manns að gerð hennar og voru vinnudagarnir langir og strembnir. „Þetta voru langir dagar og bjórbumban sem ég hafði safnað í Prag var horfin þegar tökum loks lauk. En þetta var líka algjört ævintýri og mikill hasar. Það er skemmtilegt að segja frá því að þegar við vorum næstum búin að mynda vantaði bara eina mótmælasenu sem átti að gerast á Austurvelli. Við ætluðum að reyna að redda því með tæknibrellum en stuttu áður en við réðumst í það var efnt til raunverulegra mótmæla á Austurvelli og ekki bara eina helgi, heldur helgi eftir helgi, þannig að allt í einu vorum við komnir með mótmælasenuna sem við þörfnuðumst.“ Áhugsömum er bent á heimsíðu kvikmyndarinnar sem er www.bodberi.com. -sara@frettabladid.is
Mest lesið Fann ástina og tók sénsinn í New York Lífið Lést af völdum alnæmis Lífið „Þetta eru pjöllu-klútar“ Lífið Mormónastjarna kemur út úr skápnum Lífið Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Tíska og hönnun Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Lífið Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás Lífið Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar Bíó og sjónvarp Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Lífið Synir Britney gengu tískupallinn í París Tíska og hönnun Fleiri fréttir Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Sjá meira