Eiður Smári í klóm breskra fjölmiðla 5. febrúar 2010 05:00 Erfiðir tímar Umfjöllun The Sun um Eið Smára sýnir hversu frægur hann er á Bretlandseyjum að mati Andrésar Jónssonar almannatengils.
Eiður Smári Guðjohnsen, fyrrverandi fyrirliði íslenska landsliðsins og leikmaður Tottenham, er í kastljósi bresku pressunnar um þessar mundir eftir að breska blaðið The Sun hélt því fram að hann hefði átt í ástarsambandi við undirfatafyrirsætuna Vanessu Perroncel. Samkvæmt The Sun heldur því fram að ástarsamband Eiðs Smára og Vanessu hafi átt sér stað árið 2003 og staðið yfir í sjö mánuði. Ítarlegt viðtal við leigjanda Vanessu, Lindu Wardley, var að finna á vefsíðu The Sun í gær en málið vakti gríðarlega athygli og var meðal annars fjallað um það á vef Times of India. Bæði Eiður Smári og Vanessa hafa neitað því staðfastlega að fréttir The Sun séu sannar og Vanessa hélt því fram í gær að þetta mál hefði eyðilagt orðspor sitt. „Þessar fréttir eru langt frá því að vera sannar og ég er búin að vera grátandi frá því að þær birtust fyrst,“ sagði Vanessa í samtali við breska blaðið Daily Mail. Eggert Skúlason, upplýsingafulltrúi Eiðs Smára hér á landi, sagðist ekki ætla að tjá sig um málið. Gula pressan í Bretlandi er þekkt fyrir allt annað en linkind við þekkt fólk og innan The Sun er meðal annars starfrækt sérstök lögfræðideild til að taka á þeim málum sem berast vegna frétta blaðsins. Sveinn H. Guðmarsson, útvarpsmaður á Rás 2, var lengi búsettur í London en hann segir það ekki einskorðað við hin svokölluðu götublöð að fjalla um einkalíf opinberra persóna og fræga fólksins. „Það er hefð fyrir því í bresku fjölmiðlalífi að ganga tiltölulega nærri einkalífi þess og það er ekkert eingöngu bundið við hina svokölluðu „gulu pressu“. Þessi virtu tímarit á borð við Times og Guardian hafa líka fjallað um framhjáhöld yfirstéttarinnar og annað slíkt á sínum síðum,“ segir Sveinn. Hann segir hin svokölluðu götublöð vera ákaflega mikið lesin í Bretlandi, The Sun sé til að mynda enn mest selda blað landsins. „Þau hafa kannski ekki mikinn trúverðugleika og blöð á borð við The Sun eru alveg ófeimin við að birta eitthvað, lenda í málsókn og tapa henni því þegar öllu er á botninn hvolft kaupir fólk þetta,“ segir Sveinn og bætir því við að Bretar séu ekki jafn hörundsárir fyrir hönd annarra og Íslendingar þegar einhver þjóðþekktur einstaklingur lendir á síðum blaðanna fyrir eitthvað misjafnt í einkalífinu. „Bretarnir verða ekki reiðir fyrir hönd einhvers þegar gengið er á einkalíf opinberrar manneskju. Þeir eru einfaldlega vanir því.“ Andrés Jónsson almannatengill bendir á Vanessa Perroncel sé skjólstæðingur Max Clifford en hann sérhæfir sig í að koma fólki á framfæri. „Clifford hefur viðurkennt að hafa matað fjölmiðla á fréttum af skjólstæðingum sínum og að sumar séu sannar og aðrar lognar. Allt er þetta gert í þágu þess að koma viðkomandi komist í kastljós fjölmiðla og svo spila fjölmiðlarnir auðvitað með því þetta selur blöðin.“ Andrés segir að umfjöllun The Sun um Eið Smára sýni hversu mikil stjarna Eiður sé á Bretlandi. „Meðferðin á honum er sú sama og önnur stór nöfn hafa fengið.“ freyrgigja@frettabladid.is aasdf
Mest lesið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Töff skilnaðarhringur eða fokk-jú fortíð? Áskorun Björk og Yara nýtt par Lífið Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Lífið Fleiri fréttir Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Sjá meira