Skoðar málshöfðun gegn stjórnendum fjármögnunarfyrirtækja 15. júlí 2010 18:33
Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra skoðar nú hvort tilefni sé til að höfða refsimál gegn stjórnendum fjármögnunarfyrirtækja sem báru ábyrgð á gerð ólögmætra lánasamninga sem fólu í sér gengistryggingu. Um fjörutíu og fjögur þúsund heimili eru með gengistryggð bílalán auk þess sem um sautján prósent heimila eru með slík húsnæðislán. Það voru því tugþúsundir manna sem biðu með óþreyju eftir niðurstöðu Hæstaréttar fyrir um mánuði. Sem kunnugt er dæmdi Hæstiréttur gengistryggingu krónulána ólögmæta þar sem slíkt er brot á sjötta kafla laga um vexti og verðtryggingu. Nú hafa bæði Umboðsmaður Alþingis og Talsmaður neytenda vakið athygli á 17. grein laganna. Í henni kemur fram að þessi brot varði sektum nema þyngri refsing liggi við broti samkvæmt öðrum lögum. Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra, staðfesti í samtali við fréttastofu að embættið skoði nú hvort tilefni sé til að höfða refsimál gegn stjórnendum fjármögnunarfyrirtækja sem báru ábyrgð á gerð ólögmætra lánasamninga sem fólu í sér gengistryggingu. Stjórnendur gætu þurft að greiða sektir til ríkissjóðs vegna þessa en sektirnar eru ótakmarkaðar. Upphæðirnar fara meðal annars eftir alvarleika brotsins. Það eru þó ýmis mál sem enn er verið er að skoða, svo sem hvort málið eigi fremur heima hjá sérstökum saksóknara og hvort einhver brot kunni að vera fyrnd en fyrningarfrestur í málum sem þessum er 2 ár.
Mest lesið Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Bruni við Breiðhöfða Innlent Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Innlent Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Innlent Fleiri fréttir Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Sjá meira