Vinkonur gera það gott í Danmörku linda@frettabladid.is skrifar 1. júlí 2010 07:30 Eva Dögg málar og stíliserar og Ingibjörg tekur myndirnar og vinnur þær. Myndir/Ingibjörg Torfadóttir
Vinkonurnar Ingibjörg og Eva Dögg skipa stílista- og myndatökuteymið Purple Masturbation. Þær halda úti netdagbók með verkefnum sínum sem þær ákveða og stílisera í sameiningu. Stelpurnar hafa komið sér á framfæri með því að skrifa á klósettveggi út um allan heim. „Þetta byrjaði þegar við vorum að sauma saman peysur og selja á myspace. Í viðtali áttuðum við okkur á því að okkur vantaði nafn á teymið. Í einhverju gríni ákváðum við Purple Masturbation og héldum okkur síðan við það," segir Ingibjörg Torfadóttir. Ingibjörg og vinkona hennar, Eva Dögg Rúnarsdóttir, skipa stílista- og myndatökuteymið Purple Masturbation. Þær eru búsettar í Danmörku og halda úti skemmtilegri netdagbók með myndum úr myndatökum á síðunni purplemasturbation.blogspot.com. Skrifa á veggi Stelpurnar skrifa á klósettveggi út um allan heim til að koma sér á framfæri. „Við ákveðum yfirleitt í sameiningu í hvaða anda verkefnin eiga að vera. Fáum innblástur af netinu og útfærum þetta svo eftir okkar hugmyndum," segir Ingibjörg. „Eva sér svo um hár og make-up ásamt því að stílisera en ég sé um myndatöku og vinnslu mynda." Samkvæmt stelpunum vinna þær mjög vel saman í teymi og hafa þær unnið saman í nokkur ár. Ingibjörg tekur sveinspróf í ljósmyndun nú í sumar en hún hefur bæði lært ljósmyndun hér heima og úti í Danmörku. Einnig lærði hún fatahönnun í eitt ár í Mílanó. Hún hefur unnið mörg verkefni bæði í Danmörku og hér heima. Eva Dögg er lærður fatahönnuður. Hún starfaði áður við merkið Red Issue en starfar nú við hönnun á merkinu Envy fyrir fataverslunina Samsøe & Samsøe. Báðar hafa þær svo starfað sjálfstætt að hönnun fyrir sig sjálfa og ýmis merki í Danmörku. Stelpurnar auglýsa síðuna á mjög áhugaverðan hátt. Þær ganga um með tússpenna á sér og skrifa á klósettveggi skemmtistaða og almenningsklósetta sem þær heimsækja. Áhugaverðar setningar með slóð á vefsíðuna má því sjá á ótrúlegustu stöðum. „Fólk fer á klósettið og les það sem er fyrir framan það. Ef það sem við skrifum er áhugavert eru miklar líkur á því að það kíki á síðuna og sjái það sem við erum að gera," segir Eva Dögg. Þessi auglýsingaherferð vinkvennanna hefur svo sannarlega borgað sig þar sem þær eru nú um þessar mundir í New York að vinna að leyndardómsfullu verkefni.
Menning Mest lesið Útför Gunnars Þórðarsonar Lífið Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Lífið Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Lífið Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Lífið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Heiður að endurvekja falda perlu Palla Tónlist Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Lífið Fleiri fréttir Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Sjá meira