Lífið

Áfram munaðarlaus

Munaðarlaus verður óvissusýning LA.
Munaðarlaus verður óvissusýning LA.
„Þetta hefur gengið mjög vel. Við náðum að borga upp yfirdráttinn eftir síðustu helgi,“ segir Hannes Óli Ágústsson, einn leikaranna sem standa að leiksýningunni Munaðarlaus sem hefur verið sýnt í Norræna húsinu undanfarið. „Þessi sýning er kannski vonarneisti fyrir aðra nýútskrifaða leikara. Það sést allavega að það er hægt að gera svona án styrkja og láta það ganga upp með hagsýni.“

Leikfélag Akureyrar kveikti á verkinu og hefur boðið leikhópnum að sýna fyrir norðan. Munaðarlaus verður því óvissusýning vetrarins hjá LA. Fjórar sýningar verða í boði á Akureyri, dagana 11. til 13. febrúar.„Við ákváðum í tilefni að þessu að efna til tveggja aukasýninga í bænum og það verða allra síðustu sýningar í Reykjavík,“ segir Hannes. „Þessar síðustu sýningar eru í Norræna Húsinu í kvöld og á laugardaginn. Svo ætlum við að nýta ferðina norðum og munum einnig sýna á Vopnafirði og Egilsstöðum.“ - drg





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.