Lífið

Friðrik Þór fær Wallander-leikara

Sverrir Guðnason hefur aðallega leikið í sænskum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum en kemur til Íslands og leikur í spennuþáttaröðinni Tíma nornar­innar eftir Friðrik Þór. Að sögn Guðrúnar Eddu Þórhannesdóttur verður þáttaröðin sýnd í sænska, norska og finnska ríkissjónvarpinu.
Sverrir Guðnason hefur aðallega leikið í sænskum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum en kemur til Íslands og leikur í spennuþáttaröðinni Tíma nornar­innar eftir Friðrik Þór. Að sögn Guðrúnar Eddu Þórhannesdóttur verður þáttaröðin sýnd í sænska, norska og finnska ríkissjónvarpinu.
Sverrir Guðnason, sjónvarpsleikari frá Svíþjóð, mun leika stórt hlutverk í fjögurra þátta sjónvarpsseríu sem byggð er á bók Árna Þórarinssonar, Tíma nornar­innar. Sverrir hefur getið sér gott orð fyrir leik sinn sem Pontus í Wallander-sjónvarpsmyndunum en þær hafa verið sýndar á RÚV við miklar vinsældir. Að sögn Guðrúnar Eddu Þórhannesdóttur, framleiðanda þáttaraðanna, verður sjónvarpsserían sýnd í norska, sænska og finnska ríkissjónvarpinu auk RÚV og þá er verið að ganga frá dreifingarsamningum við aðrar sjónvarpsstöðvar.

Tími nornarinnar var á sínum tíma sett upp í Útvarpsleikhúsinu og mun Hjálmar Hjálmarsson, bæjarfulltrúi Næstbesta flokksins, endurtaka hlutverk sitt sem Einar blaðamaður. Tökurnar fara að mestu leyti fram fyrir norðan. „Leiðin liggur meðal annars í Skagafjörð og við endum síðan á Akureyri,“ segir Guðrún en fjöldi ungra leikara kemur við sögu í þáttunum. Nægir þar að nefna Þóri Sæmundsson, Einar Aðalsteinsson, Ísgerði Elfu Gunnarsdóttur og Kára Viðarsson. Guðrún segir jafnframt að reynsluboltum á borð við Örn Árnason og Maríu Ellingsen muni bregða fyrir í þáttunum.

Ari Kristinsson verður tökumaður sjónvarpsþáttanna en fyrsti þáttur fer væntanlega í loftið í byrjun mars.„Við verðum í tökum fram í byrjun janúar, tökum okkur smá jólafrí,“ segir Guðrún, sem reiknar með því að höfundurinn sjálfur, Árni Þórarinsson, muni mæta á tökustaðinn og skoða aðstæður. „Hann hefur fylgst mjög vel frá upphafi og ég geri ráð fyrir því að það muni halda áfram.“





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.