Orkubúskapur styrkist en veiði dvínar 29. júlí 2010 07:30 Búist er við að miðlunarlón Blönduvirkjunar fyllist í næstu viku og að áin fari þá á yfirfall og verði illviðráðanleg til stangveiða. Mynd/Jónas Sigurgeirsson
Miðlunarlón við virkjanir Landsvirkjunar eru að fyllast tveimur til fjórum vikum fyrr en áætlanir gerðu ráð fyrir, að því er segir í frétt frá fyrirtækinu. Ástæða þessa er meira innrennsli vegna bráðnunar á jöklum sem orðin er vegna mikilla hlýinda í sumar. Gert er ráð fyrir að Hálslón við Kárahnjúkavirkjun fyllist í lok þessarar viku og Blöndulón og Þórisvatn í næstu viku. Til samanburðar kemur fram á vef Landsvirkjunar að Hálslón hafi ekki farið á yfirfall fyrr en 6. september á síðasta ári og Blöndulón ekki fyrr en 21. september. Landsvirkjun bendir á að þegar miðlunarlónin fari á yfirfall megi gera ráð fyrir að rennsli aukist verulega í Jökulsá á Dal og í Blöndu og að einnig verði aukið rennsli í Þjórsá. Þetta eru vitanlega ágæt tíðindi fyrir orkubúskap landsmanna en síðri fyrir stangveiðimenn. Gera má ráð fyrir því að illveiðanlegt verði í Jökulsá á Dal strax á næstu dögum og aðstæður í Blöndu versni til muna í næstu viku. Metveiði var í Blöndu í fyrra þegar þar veiddust 2.413 laxar. Samkvæmt upplýsingum frá leigutakanum Lax-á er veiðin í Blöndu komin á svipað ról nú þegar og því líklegt að veiðin verði enn meiri í ár en í fyrra. - gar
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Erlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent Fleiri fréttir Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Sjá meira