Nýr bæjarstjóri í Grindavík 26. júlí 2010 20:05 Róbert Ragnarsson er 34 ára stjórnmálafræðingur
Róbert Ragnarsson stjórnmálafræðingur er nýr bæjarstjóri Grindavíkur. Á bæjarstjórnarfundi í dag samþykkti bæjarstjórnin samhljóða að ráða hann til næstu fjögurra ára. Í tilkynningu frá bænum segir að ráðningarsamningurinn sé mjög hagstæður fyrir bæjarfélagið og hefur verið komið til móts við þá gagnrýni er kom fram gagnvart ráðningarsamningum bæjarstjóra á síðasta kjörtímabili. Gert er ráð fyrir því að Róbert mæti til starfa miðvikudaginn 4. ágúst. „Alls sóttu 55 um starf bæjarstjóra í Grindavík en 5 drógu umsókn sína til baka þegar ljóst var að nöfn umsækjenda yrðu birt. Capacent hafði umsjón með ráðningarferlinu. Fyrirtækið valdi úr þeim hópi fimm hæfustu einstaklingana. Þegar ljóst var hvaða fimm einstaklingar kæmu til greina fundaði bæjarstjórn og voru bæjarstjóraefnin boðuð í viðtöl til Grindavíkur. Aðili frá Capacent stýrði viðtölunum en bæjarráð sat viðtölin og gat spurt spurninga. Þegar öllum viðtölum var lokið hittist bæjarstjórn aftur og fór yfir umsækjendur. Í framhaldinu voru viðræður teknar upp við Róbert og var mjög ánægjulegt að samkomulag náðist fljótt um ráðningu hans. Meirihluti og minnihluti í bæjarstjórn vann vel saman í þessu ferli og það er fagnaðarefni að ráðning bæjarstjóra var samþykkt samhljóða í dag. Bæjarstjórn Grindavíkur vill þakka öllum umsækjendum fyrir áhugann sem þeir sýndu starfinu. Grindvíkingum óskum við til hamingju með nýjan bæjarstjóra og bjóðum Róbert og fjölskyldu hans velkomna til Grindavíkur. Róbert Ragnarsson er 34 ára gamall stjórnmálafræðingur, kvæntur Valgerði Ágústsdóttur og eiga þau 3 syni. Hann hefur undanfarin 4 ár verið bæjarstjóri í Vogum, en áður var hann verkefnisstjóri í félagsmálaráðuneytinu. Róbert er að koma aftur til Grindavíkur eftir 10 ára fjarveru, en hann var ferðamála- og markaðsfulltrúi Grindavíkurbæjar um aldamótin," segir í tilkynningunni.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira