Greiddi ekki skuldir sem námu yfir 5 milljörðum Sigríður Mogenson skrifar 26. júlí 2010 18:32
Salt Properties, félag í eigu Róberts Wessman, greiddi ekki skuldir sem námu yfir fimm milljörðum króna, en þær voru á gjalddaga í ár. Skilanefndir Landsbankans og Glitnis og Straumur munu væntanlega leysa til sín eignir félagsins, en það á meðal annars landareignir á Spáni og í Brasilíu. Salt Properties er í eigu Salt Investments, eignarhaldsfélags Róberts Wessman. Félagið á landareignir í Brasilíu og á Spáni og eignarhluti í fasteignafélögum í Vilnius í Litháen. Í síðasta birta ársreikningi Salt Properties kemur fram að afborganir á árinu 2010 nemi rúmum fimm milljörðum króna. Árni Harðarson, stjórnarmaður í félaginu, staðfesti í samtali við fréttastofu að umrædd lán væru þegar fallin á gjalddaga og að félagið hafi ekki haft bolmagn til að greiða afborganirnar. Helstu lánveitendur eru gamli Landsbankinn og Straumur. Þá á skilanefnd Glitnis einnig hagsmuna að gæta í Salt samstæðunni. Unnið er að skuldauppgjöri við bankana og verður reynt að láta eignir ganga upp í skuldir. Landareignir á Spáni og í Brasilíu auk fasteignafélaga í Litháen munu því væntanlega ganga inn í þrotabú föllnu bankanna innan tíðar. Staða Salt Investments er einnig erfið en annað dótturfélag Salt Investments keypti bréf í Glitni fyrir nokkra milljarða rétt fyrir fall bankans á lánum. Þá ríkir óvissa um verðmæti 10% eignarhlutar Salt í Actavis, en fjárhagslegri endurskipulagningu lyfjafyrirtækisins lauk samhliða nýlegu skuldauppgjöri Björgólfs Thors og ekki fást upplýsingar um hvort hlutafé var þynnt út samhliða því. Á sama tíma og samstæða Róberts Wessman riðar til falls stendur hann í stórræðum annars staðar. Á hann ráðandi hlut í samheitalyfjafyrirtækinu Alvogen, en fjögur hundruð manns starfa hjá því í Bandaríkjunum. Róbert vinnur einnig að því að opna einkasjúkrahús í gamla hersjúkrahúsinu að Ásbrú.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira