Kærði stjórnendur Kaupþings en ekkert verður gert 16. júlí 2010 18:39
Maður sem kærði stjórnendur Kaupþings til Ríkislögreglustjóra telur að þeir hafi nýtt sér fákunnáttu hans þegar honum var veitt gengislán. Kæran var send frá Ríkislögreglustjóra til Sérstaks saksóknara, sem ætlar ekki að aðhafast í málinu. Maðurinn biðlar til yfirvalda um að einstaklingar þurfi ekki að fjargviðrast í þessum málum sjálfir. Í september á síðasta ári kærðu Ólafur Garðarsson og sambýliskona hans Nýja og gamla Kaupþing, Finn Sveinbjörnsson, þáverandi bankastjóra, Sigurð Einarsson, fyrrverandi stjórnarformann og Hreiðar Má Sigurðsson, fyrrverandi forstjóra til Ríkislögreglustjóra. Þau höfðu tekið 23 milljóna króna gengislán hjá Kaupþingi sem stökkbreyttist í 56 milljónir við fall krónunnar. Sambýlisfólkið taldi að stjórnendur bankans hafi vísvitandi og með skipulögðum hætti stundað fjársvik gegn almenningi. Nýtt sér fákunnáttu viðskiptavina sinna og þannig haft af þeim fé á undanförnum árum. Í kærunni er vísað til sömu ákvæða laga um vexti og verðtryggingu og dómar Hæstaréttar um ólögmæti gengistryggðra lána byggðu á. Einnig er vísað til 17. greinar laganna en í henni kemur fram að brotin geti varðað sektum. Þá er einnig vísað til almennra hegningarlaga. Í upphafi var kæran send efnahagsbrotadeild sem vísaði málinu til sérstaks saksóknara. Í desember kom svar - saksóknarinn hugðist ekki aðhafast í málinu þar sem ákvæði laga um vexti og verðtryggingu virtust ekki fela í sér að bannað væri að binda lánasamninga við erlenda mynt. Þessu var Hæstiréttur ósammála og nú skoðar efnahagsbrotadeild hvort tilefni sé til að höfða refsimál gegn þeim stjórnendum sem báru ábyrgð á gerð lánasamninganna. Ólafur útilokar ekki að hann sendi kæruna aftur inn til efnahagsbrotadeildar. Bragi Dór Hafþórsson, lögmaður, segir mikilvægt að skoðað verði hvort lánveitingarnir hafi í raun verið efnahagsbrot gegn almenningi.
Mest lesið Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Innlent Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra Innlent „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Innlent Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Innlent Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Innlent Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Innlent Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Innlent „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Innlent Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Innlent Fleiri fréttir Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals „Sé ekki annað en að Samkeppniseftirlitið sé að sinna sínu hlutverki“ Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný „Alltaf litið á þetta sem eitthvað sem bráðamóttakan gerir“ Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Þrjú tilvik til rannsóknar: Bandero á ferðinni á hvalamiðum Þorgerður Katrín mun ekki mæta Gulla Þór Quang Le fer ekki langt Hundur hefur fundist dauður við Langjökul Sjá meira