Neyðarhnappur á Facebook í vinnslu hér á landi 16. júlí 2010 05:00
Notendum Facebook-samskiptasíðunnar í Bretlandi hefur verið gert mögulegt að setja upp neyðarhnapp á síðum sínum. Þannig geta þeir látið vita af hvers kyns óeðlilegu athæfi fólks gagnvart þeim. Hnappurinn er sérstaklega ætlaður börnum og unglingum sem nota síðuna. Tilkynningar í gegnum hnappinn munu bæði berast til Facebook og einnig til Ceop, sem er opinber eftirlitsstofnun með barnavernd í Bretlandi. Ceop mun veita ráð um hvernig á að bregðast við mögulegum ógnum á netinu en það var stofnunin sem kallaði eftir því að hnappurinn yrði settur upp. Stjórnendur Facebook voru upphaflega á móti því og töldu eigið öryggiskerfi duga. Aðrar samskiptasíður, til dæmis Myspace, hafa tekið neyðarhnappinn upp. Þrýstingur á stjórnendur Facebook jókst eftir að sautján ára gamalli breskri stúlku, Ashleigh Hall, var nauðgað og hún myrt af manni sem hún kynntist á Facebook. Maðurinn þóttist vera jafnaldri hennar en var í raun 33 ára gamall dæmdur kynferðisbrotamaður. Mjög brýnt er að auðvelt sé að tilkynna um allt sem er óeðlilegt á félagslegum síðum eins og Facebook, segir Guðberg K. Jónsson, formaður SAFT, netöryggismiðstöðvar Íslands. Á Íslandi sé einnig verið að vinna í þessum málum. „Barnaheill rekur svokallaða ábendingarlínu sem er hönnuð sérstaklega til að tilkynna um kynferðisafbrot gegn börnum á netinu," segir Guðberg. Hann segir að síðastliðið ár hafi verið unnin forvinna fyrir endurhönnun á þessum ábendingar- og neyðarhnappi. „Vonandi getum við kynnt þennan hnapp í haust. Hann verður kynntur með þeim hætti að þeim sem búa til eða dreifa efni á netinu og halda úti vefsíðum þyki eftirsóknarvert að setja hnappinn upp hjá sér." Hægt verður að koma hnappinum upp á hvaða síðu sem er. „Á þessum tímapunkti munum við ræða við Facebook líka um möguleikann á að bjóða upp á þennan hnapp." Það eru þó ekki bara börn sem þurfa að vara sig á netinu heldur er þar alls kyns glæpa- og svikastarfsemi í gangi, segir Guðberg. Nauðsynlegt sé að auðvelt sé að tilkynna um slíkt og er stefnt á að íslenski hnappurinn verði auðveldur og aðgengilegur í notkun.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Fleiri fréttir Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Ummælin sem ollu fjaðrafoki ekki rædd á fundi Höllu með páfa Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi Sjá meira