Steinunn Valdís ræktar garðinn sinn Jón Hákon Halldórsson skrifar 16. júlí 2010 15:37 Steinunn Valdís Óskarsdóttir sótti um stöðu bæjarstjóra á Akranesi. Mynd/ Stefán. „
Mér finnst Akranes vera heillandi sveitarfélag og ég er tilbúinn til þess að veita krafta mína til þess að vinna fyrir það," segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fyrrverandi borgarstjóri og fyrrverandi alþingismaður. Hún er á meðal 37 umsækjenda um stöðu bæjarstjóra á Akranesi. Steinunn Valdís segir að auglýsingin eins og hún hafi birst í blöðunum henti vel fyrir það sem hún hafi verið að gera í gegnum tíðina. „Ég stýrði stærsta bæjarfélagi landsins í tvö ár og það er líka verið að óska eftir fólki með þekkingu og reynslu af opinberri stjórnsýslu - sérstaklega sveitarfélaga," segir Steinunn Valdís. Hún telji sig því henta ágætlega í starfið. Steinunn Valdís segist hafa einlægan áhuga á Skaganum og að flytjast þangað. „Maðurinn minn er ættaður af Skaganum og ég mun að sjálfsögðu flytja þangað uppeftir ef ég verð ráðin," segir Steinunn Valdís. Hún viðurkennir jafnvel að um draumastarfið sé að ræða. „Þetta er sveitarfélag af stærð sem mér finnst heillandi. Þarna búa ríflega sex þúsund manns og þarna hefur verið nokkur uppgangur," segir Steinunn Valdís. Hún bendir á að íbúum hafi fjölgað og nýr meirihluti hafi verið myndaður. „Þarna er nokkurskonar R-lista samstarf sem ég hef mikla reynslu af að starfa með," segir Steinunn Valdís. Steinunn Valdís segist annars hafa haft það mjög gott síðan að hún hvarf af þingi. „Ég er búin að hafa það prýðilegt. Ég er búin að vera í garðrækt og búin að koma mér upp litlu gróðurhúsi og farin að sá fyrir kryddjurtum, káli og svoleiðis. Þannig að ég verð ábyggilega sjálfbær í framtíðinni," segir Steinunn Valdís glöð í bragði. Steinunn Valdís segir að margir frambærilegir kandídatar hafi sótt um starfið hjá Akranesbæ. Það standi til að ráða besta einstaklinginn faglega og ekkert hafi verið ákveðið fyrirfram um það hver eigi að fá þessa stöðu.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Sjá meira