Ófriður á stjórnarheimilinu Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 25. júlí 2010 19:14
Ríkisstjórnin gæti misst stuðning þingmeirihlutans ef kaupin á Magma Energy ganga í gegn, en þingmönnum sem neita að styðja ríkisstjórnina ef svo fer fjölgar. Stjórnmálafræðingur telur ekki ólíklegt að að boðað verði til kosninga fyrir lok kjörtímabilsins. Það er þungt hljóð í þingmannahópi Vinstri grænna vegna Magma málsins. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingflokksformaður flokksins, segist ekki munu styðja ríkisstjórnina ef kaup Magma Energy á HS orku verði ekki gerð ógild, Atli Gíslason þingmaður tekur í sama streng og Þuríður Backman, þingmaður, segist munu eiga erfitt með það. Ríkisstjórnin gæti því notið stuðnings minnihluta þingmanna ef kaupin ganga í gegn. Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur segist halda að þingmenn Vinstri grænir séu nú að setja Samfylkingunni stólinn fyrir dyrnar og að vel megi vera að málið geti klofið ríkisstjórnina ef ágreiningnum verði leyft að magnast upp og menn nái ekki að vinda ofan af umræðunni áður en hún fari úr böndunum. Hins vegar sé erfitt að sjá hvað ríkisstjórnin geti gert til að grípa inn í Magma málið. Hún segir þó að ríkisstjórninni hafi hingað til tekist að lifa þrátt fyrir að hafa óljósan þingmeirihluta á köflum. „En þessi ríkisstjórn hefur líka oft verið með ólíkindum," segir hún.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Erlent „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ Innlent Fleiri fréttir Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Sjá meira