Skiptir miklu máli að vekja upp traust 31. júlí 2010 06:00 Gylfi Zoëga
Matsfyrirtækið Moody's hefur breytt horfum um lánshæfismat ríkissjóðs úr stöðuguðum í neikvæðar. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að helsta ástæða þessarar aðgerðar sé sú óvissa sem dómur um gengistryggð lán hefur valdið og það að enn hafi ekki náðst niðurstaða í Icesave-deilunni. Lánshæfiseinkunn ríkissjóðs fyrir langtímaskuldbindingar er nú einu þrepi fyrir ofan ruslflokk. Þessi aðgerð Moody's hefur það í för með sér að áhættan á því að lánshæfismatið fari niður í ruslflokk er meiri en áður en lánshæfismat ríkissjóðs er þegar í ruslflokki hjá matsfyrirtækinu Fitch. Lækki Moody's lánshæfiseinkunina líka í ruslflokk væru það afar slæm tíðindi, segir í Morgunkorni Íslandsbanka frá því í gær. Slíkt myndi seinka fyrir því að ríkissjóður gæti sótt sér fé á erlenda markaði og grafa undan tiltrú á Íslandi. Gylfi Zoëga, hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands, telur þetta vond tíðindi. Hann segir þetta gera Íslendingum erfiðara fyrir að sækja peninga á erlenda fjármagnsmarkaði og þýða að tiltrú á Íslandi sé minni en áður. „Ísland er eins og fyrirtæki eða fjölskylda sem er búin að missa lánstraust. Þá skiptir mjög miklu máli að vekja upp traust annars staðar. Sá hringlandaháttur sem hefur verið í stjórnkerfinu undanfarið er ekki til þess fallinn," segir Gylfi. Hann bætir því svo við að allar hagstærðir séu að fara í rétta átt og í raun líti hlutirnir vel út en stóra vandamálið núna sé þessi órói innanlands.- mþl
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira