Björguðu manni úr jökulá 31. júlí 2010 20:18 Bíll á vegum björgunarsveitar í Hafnarfirði. Mynd/ Vilhelm.
Litlu mátti muna að illa færi þegar að björgunarsveitir Slysvarnafélagsins Landsbjargar björguðu manni úr jökulá fyrir norðan Jökulheima vestan við Vatnajökul á átjánda tímanum í kvöld. Tvær björgunarsveitir sem taka þátt í hálendisvaktinni Hjálparsveit skáta í Reykjavík og Björgunarsveitin Núpar frá Kópaskeri fóru í björgunina en þær voru staddar á Sprengisandsleið og við Landmannalaugar. Maður hafði ekið fjórhjóli út í jökulá sem kemur úr Sylgjujökli í Vatnajökli og festist hjólið. Ferðafélagi mannsins hafði samband við Neyðarlínu og óskaði eftir aðstoð. Sá sem var á hjólinu út í ánni þurfti að bíða eftir björgun í um þrjá tíma. Nokkurn tíma tók að staðsetja óhappið þar sem fullnægjandi upplýsingar lágu ekki fyrir um staðsetningu. Þegar björgunarsveitir komu á svæðið var hafist handa við að bjarga manninum úr ánni og gekk það greiðlega fyrir sig. Ekki mátti tæpara standa því maðurinn var orðinn kaldur og hrakinn eftir dvöl sína á hjólinu í köldu jökulvatninu í meira en þrjár klukkustundir. Um leið og hann var kominn á land var hann settur í þurr föt og hlúið að honum. Maðurinn hressist fljótt og var hjólinu bjargað úr ánni. Björgunarsveitirnar eru nú á leið til byggða ásamt leiðangursmönnum og gengur ferðin vel. Í tilkynningu frá Landsbjörg segir: „Hálendisvakt björgunarsveitanna hefur oft sannað það hversu miklu máli það skiptir að hafa viðbragð á hálendinu yfir aðal ferðamannatíman því það styttir allt viðbragð mikið þegar slys eða óhöpp verða á hálendinu. Björgunarsveitir sinna hálendisvaktinni á fjórum stöðum á landinu en það er í Landmannalaugum, Nýjadal á Sprengisandsleið, á Hveravöllum á Kili og í Öskju. Aukin útbreiðsla GSM símakerfisins hefur enn og aftur sannað gildi sitt þegar kemur að öryggi ferðamanna á hálendi Íslands því útbreiðslan hefur aukist stórlega á hálendinu undafarið. "
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira