Veiði borgarfulltrúa kostaði 641 þúsund 31. júlí 2010 07:00 Oddvitar Sjálfstæðisflokks og F-lista voru meðal þeirra þrettán borgarfulltrúa sem þáðu ókeypis laxveiði á síðasta kjörtímabili. Þótt þeir séu báðir hættir í borgarstjórn munu þeir áfram geta veitt einu sinni ári í Elliðaánum sem fyrrverandi borgarstjórar. Fréttablaðið/Auðunn
Kostnaður Orkuveitu Reykjavíkur vegna laxveiða borgarfulltrúa í Elliðaánum nam 640.896 krónum sumarið 2009. Þetta kemur fram í síðbúnu svari skrifstofu borgarstjóra við fyrirspurn sem Ólafur F. Magnússon, þáverandi borgarfulltrúi, setti fram í borgarráði 12. nóvember í fyrra. Fyrirspurn Ólafs var aldrei svarað formlega. Engar skýringar fengust á því þegar Fréttablaðið leitaði eftir þeim á skrifstofu borgarstjóra fyrir um þremur vikum. Í formlegu svari sem nú hefur borist frá borgarstjóraskrifstofunni er heldur engin skýring gefin þótt um hana hafa verið beðið. Hins vegar eru veitt svör við spurningum Ólafs frá í nóvember eins og óskað var eftir. Borgin segir svörin byggð á upplýsingum frá Orkuveitu Reykjavíkur. Eins og áður segir nam heildarkostnaður vegna veiðidaga kjörinna fulltrúa í borgarstjórn Reykjavíkur tæplega 641 þúsund krónum í fyrra. Kostnaðurinn er ekki sundurliðaður og ekki kemur fram hvort veiðileyfi eru reiknuð þar inn. „Björk Vilhelmsdóttir, Björn Ingi Hrafnsson, Dagur B. Eggertsson, Gísli Marteinn Baldursson, Jórunn Ósk Frímannsdóttir Jensen, Kjartan Magnússon, Ólafur F. Magnússon, Óskar Bergsson, Sigrún Elsa Smáradóttir, Stefán Jón Hafstein, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir,“ er svarið við spurningunni um hvaða borgarfulltrúar hafi þegið boð um veiði í Elliðaánum sumrin 2006, 2007, 2008 og 2009, það er á síðasta kjörtímabili. Orkuveitan segir ekki hægt að sundurgreina kostnað vegna hvers borgarfulltrúa fyrir sig eins og Ólafur óskaði eftir. Þá sé ekki hægt að greina frá því hverjum öðrum en borgarfulltrúum hafi verið boðið í laxveiði á dögum ætluðum fyrir kjörna fulltrúa. „Borgarfulltrúar fá boð um veiði en í einhverjum tilvikum hafa einstakir embættismenn fengið boð um að veiða ef borgarfulltrúar forfallast. Skrifstofu borgarstjóra er ekki kunnugt um hvaða embættismenn hafa fengið eða þegið slík boð,“ segir í svarinu. Loks var spurt hvort í ofangreindri kostnaðartölu sé tekið tillit til kostnaðar vegna annarra en borgarfulltrúa, svo sem embættismanna borgarinnar og Orkuveitunnar ásamt stjórnarmönnum og starfsmönnum OR. Búast má við að útlagður kostnaður OR vegna veiðidaganna sé enn meiri en að framan greinir því svarið er það að talan feli ekki sér kostnað vegna annarra en borgarfulltrúanna sjálfa. gar@frettabladid.is
Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Erlent Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? Innlent „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Innlent Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Innlent Fleiri fréttir Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Veðurspáin að bjarga miðasölu Þjóðhátíðar fyrir horn Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Níutíu prósent minkanna hafi ekki næstu daga af „Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Minkafár í Mosfellsdal og Þjóðhátíð undirbúin Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Sjá meira