Roklandið rís úr sæ 19. desember 2010 10:00 Hallgrímur Helgason.
Fyrir tveimur birtist stikla úr kvikmyndinni Rokland eftir Martein Þórsson. Og nú, rúmum tveimur árum síðar, er komin ný stikla úr sömu mynd með nýjum áherslum. Rokland, kvikmynd eftir Martein Þórsson byggð á samnefndri sögu Hallgríms Helgasonar, verður frumsýnd þann 14. janúar. Myndin skartar Ólafi Darra í hlutverki hins kjaftfora Bödda en hann er dyggilega studdur af Elmu Lísu Gunnarsdóttur, Láru Jóhönnu Jónsdóttur og Ladda. Þá bregður Kastljósstjörnunni Helga Seljan fyrir í myndinni. Hann var í töluvert stóru hlutverki í gömlu stiklunni en það hefur verið minnkað og því breytt.Myndarinnar hefur verið beðið með töluverðri eftirvæntingu í talsverðan tíma en leikstjórinn segir þetta hafa sínar eðlilegu skýringar. „Við vorum bara að vanda okkur, klippiferlið var langt og eftirvinnsluferlið tók langan tíma," útskýrir Marteinn en formlegum tökum lauk í september á síðasta ári. „Það er talsvert af brelluskotum í myndinni og hún er aðeins flóknari heldur en hún lítur út fyrir að vera. Og þegar maður er ekki með stórt „budget" þá tekur þetta allt sinn tíma," en þegar Fréttablaðið náði tali af honum var hann að vinna í hljóðinu. Margir hrifust af teiknimynda-fídusum sem sáust í fyrstu stiklunni en þeir eru ekki jafn áberandi í þeirri nýju. Marteinn róar aðdáendur þeirrar tækni og tekur skýrt fram að þeir verði fyrir hendi í myndinni. Bókin kom út fyrir fimm árum, þegar engin kreppa var fyrir hendi, bankarnir bara í bullandi stuði og allir með yfirdrátt og gengislán. Og þegar fyrsta stiklan var frumsýnd fyrir rúmum tveimur árum virtist ekkert benda til þess að þessi gósentíð yrði brátt að baki. En svo hrundi allt. „Myndin gerist árið 2009, þetta er samt alveg sama myndin, í bara aðeins öðruvísi útfærslu," segir Marteinn sem sýndi klukkutíma brot úr henni á íslenskri menningarhátíð í Póllandi fyrir skömmu. Úti í salnum sat sjálfur rithöfundurinn, Hallgrímur Helgason. Marteinn segir að hann hafi verið í reglulegum samskiptum við höfundinn, sent honum handritið og svo hafi þeir ekki alveg verið sammála um hver ætti að leika aðalhlutverkið. „Það var annar leikari sem kom til greina sem hafði útlit Bödda. Og Hallgrímur vildi fá hann. Hann viðurkenndi hins vegar úti í Póllandi, eftir að hafa séð brotið, að ég hafði haft rétt fyrir mér, þessi karakter kemur svo mikið innan frá." Hallgrímur sjálfur kveðst vera ákaflega spenntur fyrir frumsýningunni. „Þetta var mikil upplifun fyrir mig að sjá þetta brot og mér fannst Ólafur Darri skemmtilegur í þessu hlutverki, hann gefur þessa nýja og aðra vídd. Vandræðin við Ólaf eru náttúrlega þau að Böddi, persónan sem hann leikur, er svo ósympatískur en ég held að það hafi náðst að mynda þetta jafnvægi," segir Hallgrímur. Og hann er hrifinn af staðfæringunni, að láta myndina gerast 2009, þegar allir eru eiginlega eins og Böddi í stað 2005 þegar Böddi stakk í stúf. „Ég held að Böddi hafi verið svolítið á undan sínum samtíma með sína innri reiði, tímarnir hafa breyst í þá átt sem hann talaði um." freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Lífið samstarf Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Fleiri fréttir Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Sjá meira