Skólabækur með sál ódýrari 14. ágúst 2010 12:19 Mynd/GVA
Kostnaður framhalds- og háskólanema við bókakaup hleypur á tugum þúsunda, en töluvert er hægt að spara með því að kaupa bækur með sál. Nemar eru nú margir hverjir farnir að hugsa til vetrarins og skipuleggja nám sitt þegar farið er að styttast í annan endann á sumrinu. Það er ekki ókeypis að stunda nám og eru kaup á kennslubókum drjúgur kostnaður í því sambandi. Gera má ráð fyrir að bókakostnaður framhalds- og háskólanema hlaupi á tugum þúsunda á hverri önn að því gefnu að bækurnar séu keyptar nýjar. Hinsvegar hafa skiptibókamarkaðir sparað mörgum skildinginn í gegnum námsárin. Í fréttatilkynningu frá vefsíðunni skiptibokamarkadur.is segir að á fyrsta starfsári síðunnar hafi námsmenn verslað um 10 þúsund bækur fyrir um 40 milljónir króna í gegnum síðuna. Nýjar hefðu bækurnar kostað um 80 milljónir og því megi gera ráð fyrir að námsmenn séu að spara töluvert með því að versla við síðuna. Það geti því munað töluverðum fjármunum á því að kaupa notaðar bækur auk þess sem seljendurnir fá eitthvað fyrir bækur sem annars hefðu legið ónotaðar í bókahillu. Skiptibókamarkaður Eymundsson er einnig kominn á fullt á heimasíðu verslunarinnar sem státar sig af því að vera með eitt mesta úrval notaðra kennslubók. Tiltölulega auðvelt er að sjá úrvalið í Eymundsson á netinu en þar er einungis boðið upp á þá titla sem til eru í verslunum Eymundsson. Og þá er bara að koma sér af stað, prenta út bókalistann og finna hagstæðustu verðin á skólabókunum. Þær lesa sig víst ekki sjálfar.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Sjá meira