Innlent

Útlendar sveitir vilja æfa hérna

Björgunarsveitin við störf Félagar í íslensku alþjóðabjörgunarsveitinni ræða við innfæddan á Haítí eftir jarðskjálftana þar í byrjun árs. Nordicphotos/AFP
Björgunarsveitin við störf Félagar í íslensku alþjóðabjörgunarsveitinni ræða við innfæddan á Haítí eftir jarðskjálftana þar í byrjun árs. Nordicphotos/AFP
 Alþjóðarústabjörgunarsveit Hollendinga (USAR-NL) vill halda æfingu á Gufuskálum, æfingasvæði íslensku rústabjörgunarsveitarinnar (ÍA). Á vef Lands­bjargar segir að fulltrúar sveitarinnar hafi rætt þetta á fundi með stjórnendum íslensku sveitarinnar í byrjun vikunnar.

„Það er ljóst að í kjölfar út­kalls­ins til Haíti líta kollegar okkar erlendis upp til ÍA og vilja þjálfa með sveitinni. Ekki er nema tæp vika síðan sendinefnd frá kínversku jarðskjálftastofnuninni fundaði með ÍA, en stofnunin heldur úti rústabjörgunarsveitunum í Kína,“ segir á vef Landsbjargar. - óká



Fleiri fréttir

Sjá meira


×